Modibodi túrnærbuxurnar bylting fyrir alla sem fara á blæðingar Modibodi.is kynnir 29. ágúst 2019 16:15 Modibodi túrnærbuxurnar eru bæði þægilegar og flottar. Modibodi.is
Modibodi.is netverslun selur rakadrægar nærbuxur sem nota má á meðan á blæðingum stendur og fleiri vörur tengdum tíðablæðingum. Modibodi buxurnar nýtast einnig þeim sem glíma við minniháttar þvagleka eða mikla útferð og segir Arna Sigrún Haraldsdóttir, fatahönnuður og viðskiptafræðingur, MBA og eigandi verslunarinnar, öra tækniþróun í textílgeiranum hafa gjörbreytt valkostum í tíðavörum.„Þetta er algjör frelsun og mikið þægilegri kostur fyrir líkamann og fyrir umhverfið en bindi og tappar. Túrnærbuxur eru nýjung sem ég hef trú á og eftir að hafa prófað frá nokkrum framleiðendum varð ég mér úti um umboðið fyrir Modibodi. Þetta er ástralskt merki sem þróað er af konu sem glímdi við þvagleka í kjölfar barnsburðar því þó ég kalli þetta túrnærbuxur þá taka þær við hvaða leka sem er. Stór hópur viðskiptavina minna eru eldri konur sem hafa þurft að vera eð bindi eða innlegg alla daga árum saman vegna þvagleka. Fyrir þær er þetta algjör bylting,“ útskýrir Arna. Þá séu Modibodi-buxurnar afar vinsælar af unglingsstúlkum.„Unglingar í dag eru meðvitaðir um umhverfið og eins treysta þær túrnærbuxum betur en bindum. Blæðingar geta einnig verið afar viðkvæmt mál, sérstaklega þegar stelpur byrja mjög ungar og vilja kannski ekki nota bindi, þá er einfaldara að fara bara í svona nærbuxur. Við erum með allskonar snið, fáum liti tvisvar á ári og ólíkar stærðir, allt frá mjög litlum fyrir þær yngstu og upp í 6XL. Virka þessar nærbuxur í alvörunni? „Það lekur ekki í gegn, það er alveg gulltryggt en þær taka ekki við endalausu magni ekki frekar en bindi eða tappar. Buxurnar koma með tveimur mismunandi stigum rakadrægni og algengt er að nota tvennar til þrennar buxur á sólarhring. Það þarf hver og einn að finna hjá sjálfum sér. Svo er þeim bara hent í þvottavélina með venjulegum þvotti.“Kynna vörurnar í Víkingsheimilinu um helgina„Við verðum við alla helgina á Haust Pop-Up markaði netverslana í Víkingsheimilinu og á opnunarhófi Plastlauss september í Ráðhúsinu með túrnærbuxur af öllum gerðum. Modibodi.is er fyrst og fremst netverslun en það er alltaf velkomið að kíkja til okkar á skrifstofuna og fá að skoða sýnishorn og fá leiðbeiningar. Margir koma með venjulegar nærbuxur að heiman til að bera saman og finna réttu stærðina, sérstaklega þegar viðkomandi er að kaupa fyrir aðra. Á markaðnum um helgina verða einnig fleiri vörur sem við erum með svo sem tíðabikarar og meðgöngulínu,“ segir Arna.Nánari upplýsingar og ýmiskonar fræðslu er að finna á modibodi.is og á facebook.Haust Pop-Up markaðurinn fer fram í Víkingsheimilinu í Fossvogi og hefst 31. ágúst og stendur til 1. september. Opið verður milli klukkan 11 og 17.Þessi kynning er unnin í samstarfi við Modibodi.is
Heilsa Mest lesið Ungfrú Ísland rýfur tengslin við Ungfrú Ísland Lífið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Lífið Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Menning Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Lífið Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Menning Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Lífið Bestu myndir Robs Reiner Bíó og sjónvarp Segir síðasta ár hafa verið strembið Lífið Stjörnulífið: Skýrslutaka hjá lögreglu, æla og Æðis-legir endurfundir Lífið „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Lífið Fleiri fréttir Íslensk nauta- og sælkeratólg slær í gegn Sú besta hingað til Sjórinn er enn á sínum stað Þroskuð húð fær aukinn ljóma Mzungu þýðir ekki annað en trúgjörn bráð Amor svífur yfir Norðurlandi Aftenging í sítengdum heimi Spennandi nýjungar í íslensku konfekti Metsölulisti og enn betra bókaverð í Nettó Hröð og skemmtileg rússíbanareið EKOhúsið sér um umhverfisvænu jólagjafirnar Ekkert betra en sú þerapía að rifja sitt eigið líf upp Næturserum fyrir hárið – bylting í hárumhirðu Glóandi hættulestur Árni Már og Unnar Ari opna vinnustofuna á laugardaginn Fólk hafði af því miklar áhyggjur að ég ætlaði að „pipra“ Fallegu jólagjafirnar fást í Maí Alvöru ítalskur veitingastaður í hjarta borgarinnar Pöbbkviss 5 söluhæsta spil landsins Gefðu töfrandi skemmtun í jólagjöf Epli með nýja stórglæsilega verslun Konfektleikur í tilefni 90 ára afmælis Nóa Síríus Samsæri á Paradísareyjunni Bjóða upp á jólakaffi allar helgar fram að jólum Fröken Dúlla og konurnar sem báru skömmina 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Snörp og áhrifamikil bók Jólagjafahugmyndir sem hitta í mark Vestfirsk náttúra skapar dulúð í nýjustu bók Margrétar S. Höskuldsdóttur Elvis heimsmeistari snýr aftur til Íslands Sjá meira