Dramatískur sigur Tyrkja Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 11. október 2019 22:00 Tyrkir hafa verið á mikilli siglingu. vísir/getty Cenk Tosun tryggði Tyrkjum sigur á Albaníu í H-riðli okkar Íslendinga í undankeppnni EM 2020 í kvöld. Sigurmark Tosun kom á síðustu mínútu venjulegs leiktíma eftir að Tyrkir höfðu verið sterkari aðilinn í leiknum en ekki náð að brjóta ísinn. Sigurinn þýðir að Tyrkir eru ásamt Frökkum á toppnum með 18 stig. Íslendingar eru með 12 stig í þriðja sæti, Albanir með 10 og svo reka Andorra og Moldóva lestina með þrjú stig hvor. Andorra vann sér inn sín stig í kvöld með sigri á Moldóvu á heimavelli sínum. Marc Vales gerði eina mark leiksins á 63. mínútu. EM 2020 í fótbolta
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti