Snjósöfnun næstu daga Stefán Ó. Jónsson skrifar 22. október 2019 07:03 Búast má við snjósöfnun á norðanverðu landinu næstu daga. Vísir/vilhelm
Kort Veðurstofunnar fyrir vikuna eru vetrarleg. Jörð er nú þegar orðin hvít á norðanverðu landinu og má þar búast við éljagangi í dag. Ekki er loku fyrir það skotið að él muni jafnframt gera vart við sig syðst á landinu fram að hádegi. Að öðru leyti er búist við bjartviðri sunnan- og vestanlands. Gert er ráð fyrir að hvessi eftir því sem líður á daginn og að vindhraðinn verði um 10 til 18 m/s síðdegis. Það verður hvassast norðvestantil í dag en suðaustanlands á morgun. Útlit er fyrir áframhaldandi kalda norðanátt fram á föstudag, en þá gerir Veðurstofan ráð fyrir að éljagangurinn muni ganga niður á norðanverðu landinu. Snjósöfnun verður nokkur næstu daga og má búast við „vetraraðstæðum norðantil á landinu“ eins og veðurfræðingur kemst að orði: hálku, skafrenningi og lélegu skyggni á köflum.Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðanátt 10-18 m/s, hvassast með suðausturströndinni. Dálítil él á norðanverðu landinu, en léttskýjað sunnantil. Frost 1 til 8 stig. Á fimmtudag: Norðan 13-20 og él, en yfirleitt þurrt um landið sunnanvert. Frost 0 til 6 stig. Á föstudag: Norðanátt, víða 8-13 m/s, og bjart veður, en dálítil él norðaustantil á landinu. Áfram kalt í veðri. Á laugardag (fyrsti vetrardagur): Hæg breytileg átt, víða léttskýjað og frost um allt land. Á sunnudag: Vestlæg átt og skýjað en þurrt um vestanvert landið en léttskýjað austantil. Hlýnandi veður. Á mánudag: Vestanátt og skúrir, en þurrt um austanvert landið. Hiti 2 til 7 stig.
Veður Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn Sjá meira