Innlent

Hæg vestan­átt og smá­skúrir

Atli Ísleifsson skrifar
Spákortið fyrir klukkan 14 í dag eins og það leit út í morgunsárið.
Spákortið fyrir klukkan 14 í dag eins og það leit út í morgunsárið. Veðurstofan

Veðurstofan spáir fremur hægri vestanátt í dag og smáskúrir en að skýjað verði með köflum um austanvert landið. Hitinn verður á bilinu 4 til 14 stig að deginum, hlýjast á Suðausturlandi en svalast með norðausturströndinni.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að svipað veður verði á morgun en stytti upp um vestanvert landið nálægt hádegi.

„Síðdegis snýst í norðan 5-10 m/s og léttir til sunnan- og vestanlands, en um norðanvert landið þykknar upp og kólnar með slydduéljum og éljum síðar um kvöldið.

Útlit er fyrir að norðanáttin haldist fram á laugardag með hita að 10 stigum yfir daginn á Suður- og Vesturlandi en um og undir frostmarki norðaustantil.“

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Vestanátt, víða 5-10 m/s um morguninn og dálitlar skúrir, en þurrt á Austfjörðum og Suðausturlandi. Hiti frá 3 stigum á Vestfjörðum, upp í 15 stig suðaustanlands. Norðlægari vindur seinnipartinn og kólnar á norðanverðu landinu með lítilsháttar slydduéljum, en léttir til á Suður- og Vesturlandi.

Á föstudag: Norðan 5-13 og bjartviðri, en dálítil él norðaustantil á landinu. Hiti frá frostmarki í innsveitum norðaustanlands, upp í 10 stig á Suðurlandi. Lægir um kvöldið og frystir víða, einkum inn til landsins.

Á laugardag: Hæg norðlæg átt en norðvestan 8-13 austast á landinu. Þurrt og bjart veður, en stöku él um landið austanvert. Hiti um og undir frostmarki norðaustantil, en 6 til 11 stig á Suður- og Vesturlandi að deginum.

Á sunnudag: Gengur í vestan og suðvestan 8-15 m/s. Þykknar upp um vestanvert landið en víða bjartviðri austantil. Hlýnar í veðri, hiti 7 til 12 stig síðdegis.

Á mánudag: Vestlæg eða breytileg átt og víða dálítil rigning. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast á Suðausturlandi.

Á þriðjudag: Hæg vestlæg átt og súld með köflum, en skýjað og þurrt um norðanvert landið. Hiti 5 til 10 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×