Þáttur dagsins í #höldumáfram er með Jóhönnu Júlíu Júlíusdóttur CrossFit-konu.
Jóhanna Júlía sýnir útiæfingu sem krefst þess að nýta það sem hægt er að finna í umhverfinu, til dæmis er bekkur mjög hentugur.
Æfingin er ekki mjög krefjandi og hentar því meðal annars vel fyrir fólk sem er ekki vant að æfa mjög mikið eða er jafnvel að byrja í átakinu.
Jóhanna Júlía Júlíusdóttir er ein efnilegasta CrossFit-kona landsins. Hún kemur úr CrossFit Suðurnes, sem starfrækt er í Sporthúsinu í Reykjanesbæ, og hefur tekið þátt á alþjóðlegum CrossFit-mótum.
Verkefnið #höldumáfram snýr að því að hvetja fólk til að hugsa um líkamlega og andlega heilsu hvort sem það er að taka æfingu, fara í göngutúr, hugleiða eða hvað sem skiptir hvern og einn máli. En þessa dagana þarf fólk að gera það heima eða úti í náttúrunni. Sjá má fleiri æfingar hér fyrir neðan.
#höldumáfram er herferð á vegum Nocco. Í henni sýnir íþróttafólk og þjálfarar sniðugar æfingar. Einnig er fólk hvatt til að taka þátt á samfélagsmiðlum með myllumerkinu #höldumáfram, sýna frá því sem það er að gera en um leið hvetja vini og aðra til að gera slíkt hið sama. Halda áfram að hugsa um sig því líkamleg og andleg heilsa hafa sjaldan skipt jafn miklu máli. Ekki bara fyrir hvern og einn heldur samfélagið í heild.