Karius er enn í sambandi við Klopp Anton Ingi Leifsson skrifar 16. apríl 2020 10:45 Klopp og Karius ræða saman. vísir/getty
Loris Karius, markvörður Liverpool sem hefur verið á láni hjá tyrkneska félaginu Besiktas undanfarin tvö tímabil, segist ekki vita hvað framtíðin beri í skauta sér en segist þó enn ræða við Jurgen Klopp, stjóra Liverpool. Markvörðurinn hefur ekki spilað leik fyrir Liverpool eftir að hafa kastað Meistaradeildinni á glæ fyrir Liverpool í úrslitaleiknum gegn Real Madrid árið 2018 þar sem sá þýski gerði tvö hörmuleg mistök. Eftir það var hann sendur að láni til Besiktas þar sem hann hefur verið síðustu tvær leiktíðir en tyrkneski boltinn er eins og flestar aðrar deildir í Evrópu á ís vegna kórónuveirunnar. Hann segist enn halda sambandi við sitt fólk hjá Liverpool en ekki er vitað hvað verður um Karius er hann snýr til baka úr láninu í sumar. „Ég blanda mér ekki í sögusagnir. Staðreyndirnar eru þær að ég er með samning við Liverpool til 2022. Nú er ég bara einbeita mér að Besiktas og það er of snemmt að segja til um hvað gerist í sumar, sérstaklega þegar við vitum ekkert hvað gerist útaf kórónuveirunni,“ sagði sá þýski við Bild í heimalandinu. „Ég tala mest við markmannsþjálfarann John Achterberg og tala við hann næstum því í hverri viku. Hann er sá fyrsti sem ég tala við en ég tala einnig við Jurgen Klopp. Ég er í sambandi við alla og hef aldrei misst það samband.“ #Loris #Karius über #Bundesliga-Rückkehr, #Jürgen #Klopp und Patzer gegen #Real #Madrid https://t.co/nFjnF5Tdej— SPORT BILD (@SPORTBILD) April 15, 2020
Enski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Íslenski boltinn Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Handbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira