„Ég hélt að ég væri bara búinn að sigra heiminn“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 25. maí 2020 16:30 Rætt var við Arnar Gauta í þættinum Gagnaverið. Aðsend mynd Auglýsendur flykkjast inn á samfélagsmiðilinn TikTok vegna gríðarlegra vinsælda hans, sérstaklega vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Eitt af því sem hefur tryggt vinsældir TikTok er snjöll hönnun og svo er þar mikið af fjölbreyttu efni svo allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Margir Íslendingar eru komnir á TikTok, þar á meðal er Arnar Gauti, en hann hefur náð að safna yfir 232.000 fylgjendum á miðlinum og aðeins fjögur prósent þeirra eru Íslenskir. Í nýjasta þætti af hlaðvarpinu Gagnaverið fer Arnar Gauti yfir það hvernig hann náði að safna þessum fylgjendafjölda. „Ég byrjaði á TikTok núna í fyrra, semsagt 2019, einhvern tímann í september út af því að Gauti vinur minn var alltaf að hamast í mér að byrja út af því að þetta væri svo spennandi og nýtt og svona. Svo var ég alltaf að setja einhver gömul myndbönd inn, sem ég átti í símanum.“ B5 myndbandið byrjunin á ævintýrinu Arnar Gauti er 21 árs gamall og er þekktur sem Lil Curly á TikTok en notendanafnið hans er lilcurlyhaha. Í janúar á þessu ári vaknaði Arnar Gauti með fullt af ólesnum skilaboðum frá ókunnugu fólki. „Hvað þarf ég að borga þér fyrir að nota lagið mitt á TikTok?“ Hann áttaði sig á því að meira en 400.000 einstaklingar höfðu skoðað TikTok myndband frá honum, DJ myndband frá B5 frá því nokkrum dögum áður. Meira en 10 milljónir hafa skoðað það myndband í dag. @lilcurlyhaha Can t believe he just did that! original sound - lilcurlyhaha „Ég hélt að ég væri bara búinn að sigra heiminn.“ Síðan þá hefur hann birt reglulega myndband og hefur mjög gaman af því að „harka“ á þessum miðli. „Þetta er svolítil sýra fyrir eldra fólkið því þetta eru bara svona krakkar inni að fylgjast með þessu. Það sem mér finnst fyndið, ef ég set það inn þá verður það ekkert vinsælt, ég þarf að setja bara inn einhvern svona trending dans sem mér finnst kannski ekkert fyndinn en virkar.“ Tapaði sjálfsvirðingunni fyrir fleiri fylgjendur Arnar Gauti segir að meðal krakka sé hann það vinsæll að börn elta hann um Kringluna og taka af honum myndbönd að ganga. Foreldrar hans trúa því varla þessum óvæntu vinsældum en flestir fylgjendur Arnars Gauta eru í Bandaríkjunum. Hann segir að efnið sem virki oftast á TikTok sé ógeðslega heilalaust og vitlaust. „Ég er alveg búinn að missa smá sjálfsvirðingu fyrir sjálfum mér á að vera á þessu appi.“ Viðtalið við Arnar Gauta hefst á mínútu 34:46 í þættinum. Hvað gerir miðilinn svona vinsælan? Hvernig er algóriþminn að velja efnið fyrir okkur? Hefur TikTok náð sínum hæðum eða eru þeir rétt að byrja? Hver er tengingin við Kína? Af hverju var forritið bannað í Indlandi? Þessum spurningum og mörgum fleiri er svarað í þættinum, sem hægt er að hlusta á í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan. Gagnaverið er nýtt hlaðvarp hér á Vísi og er fyrir alla sem hafa áhuga á að læra meira um tæknina sem er alls staðar í kringum okkur. Meðal annars verður fjallað um rafíþróttir, 5G, sjálfkeyrandi bíla, raddstýringu tækja og svo verður líka farið yfir það hvernig gervigreind virkar. Umsjónarmenn þáttanna eru Arnar Kjartansson, María Rós Kaldalóns og Jóhann Hall. Samfélagsmiðlar Gagnaverið Tækni TikTok Tengdar fréttir Gagnaverið: Allt sem þú þarft að vita um TikTok Í nýjasta þætti af hlaðvarpinu Gagnaverið er fjallað um samfélagsmiðilinn TikTok. Hann hefur náð gífurlegum vinsældum á síðustu tveimur árum og þá sérstaklega vegna útbreiðslu Covid-19. 22. maí 2020 09:03 TikTok myndbönd þeirra frægu með börnunum sínum TikTok er snjallforrit þar sem notendur geta hlaðið upp myndböndum og sömuleiðis horf á myndbönd annarra notenda. 7. apríl 2020 15:31 TikTok faldi myndbönd frá notendum sem voru taldir ljótir, fátækir eða fatlaðir Stjórnendum forritsins TikTok var skipað að fela myndbönd sem birt voru á forritinu af notendum sem voru of ljótir, virtust fátækir eða fatlaðir. 17. mars 2020 19:35 Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Sahara Ray látin Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira
Auglýsendur flykkjast inn á samfélagsmiðilinn TikTok vegna gríðarlegra vinsælda hans, sérstaklega vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Eitt af því sem hefur tryggt vinsældir TikTok er snjöll hönnun og svo er þar mikið af fjölbreyttu efni svo allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi. Margir Íslendingar eru komnir á TikTok, þar á meðal er Arnar Gauti, en hann hefur náð að safna yfir 232.000 fylgjendum á miðlinum og aðeins fjögur prósent þeirra eru Íslenskir. Í nýjasta þætti af hlaðvarpinu Gagnaverið fer Arnar Gauti yfir það hvernig hann náði að safna þessum fylgjendafjölda. „Ég byrjaði á TikTok núna í fyrra, semsagt 2019, einhvern tímann í september út af því að Gauti vinur minn var alltaf að hamast í mér að byrja út af því að þetta væri svo spennandi og nýtt og svona. Svo var ég alltaf að setja einhver gömul myndbönd inn, sem ég átti í símanum.“ B5 myndbandið byrjunin á ævintýrinu Arnar Gauti er 21 árs gamall og er þekktur sem Lil Curly á TikTok en notendanafnið hans er lilcurlyhaha. Í janúar á þessu ári vaknaði Arnar Gauti með fullt af ólesnum skilaboðum frá ókunnugu fólki. „Hvað þarf ég að borga þér fyrir að nota lagið mitt á TikTok?“ Hann áttaði sig á því að meira en 400.000 einstaklingar höfðu skoðað TikTok myndband frá honum, DJ myndband frá B5 frá því nokkrum dögum áður. Meira en 10 milljónir hafa skoðað það myndband í dag. @lilcurlyhaha Can t believe he just did that! original sound - lilcurlyhaha „Ég hélt að ég væri bara búinn að sigra heiminn.“ Síðan þá hefur hann birt reglulega myndband og hefur mjög gaman af því að „harka“ á þessum miðli. „Þetta er svolítil sýra fyrir eldra fólkið því þetta eru bara svona krakkar inni að fylgjast með þessu. Það sem mér finnst fyndið, ef ég set það inn þá verður það ekkert vinsælt, ég þarf að setja bara inn einhvern svona trending dans sem mér finnst kannski ekkert fyndinn en virkar.“ Tapaði sjálfsvirðingunni fyrir fleiri fylgjendur Arnar Gauti segir að meðal krakka sé hann það vinsæll að börn elta hann um Kringluna og taka af honum myndbönd að ganga. Foreldrar hans trúa því varla þessum óvæntu vinsældum en flestir fylgjendur Arnars Gauta eru í Bandaríkjunum. Hann segir að efnið sem virki oftast á TikTok sé ógeðslega heilalaust og vitlaust. „Ég er alveg búinn að missa smá sjálfsvirðingu fyrir sjálfum mér á að vera á þessu appi.“ Viðtalið við Arnar Gauta hefst á mínútu 34:46 í þættinum. Hvað gerir miðilinn svona vinsælan? Hvernig er algóriþminn að velja efnið fyrir okkur? Hefur TikTok náð sínum hæðum eða eru þeir rétt að byrja? Hver er tengingin við Kína? Af hverju var forritið bannað í Indlandi? Þessum spurningum og mörgum fleiri er svarað í þættinum, sem hægt er að hlusta á í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan. Gagnaverið er nýtt hlaðvarp hér á Vísi og er fyrir alla sem hafa áhuga á að læra meira um tæknina sem er alls staðar í kringum okkur. Meðal annars verður fjallað um rafíþróttir, 5G, sjálfkeyrandi bíla, raddstýringu tækja og svo verður líka farið yfir það hvernig gervigreind virkar. Umsjónarmenn þáttanna eru Arnar Kjartansson, María Rós Kaldalóns og Jóhann Hall.
Gagnaverið er nýtt hlaðvarp hér á Vísi og er fyrir alla sem hafa áhuga á að læra meira um tæknina sem er alls staðar í kringum okkur. Meðal annars verður fjallað um rafíþróttir, 5G, sjálfkeyrandi bíla, raddstýringu tækja og svo verður líka farið yfir það hvernig gervigreind virkar. Umsjónarmenn þáttanna eru Arnar Kjartansson, María Rós Kaldalóns og Jóhann Hall.
Samfélagsmiðlar Gagnaverið Tækni TikTok Tengdar fréttir Gagnaverið: Allt sem þú þarft að vita um TikTok Í nýjasta þætti af hlaðvarpinu Gagnaverið er fjallað um samfélagsmiðilinn TikTok. Hann hefur náð gífurlegum vinsældum á síðustu tveimur árum og þá sérstaklega vegna útbreiðslu Covid-19. 22. maí 2020 09:03 TikTok myndbönd þeirra frægu með börnunum sínum TikTok er snjallforrit þar sem notendur geta hlaðið upp myndböndum og sömuleiðis horf á myndbönd annarra notenda. 7. apríl 2020 15:31 TikTok faldi myndbönd frá notendum sem voru taldir ljótir, fátækir eða fatlaðir Stjórnendum forritsins TikTok var skipað að fela myndbönd sem birt voru á forritinu af notendum sem voru of ljótir, virtust fátækir eða fatlaðir. 17. mars 2020 19:35 Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Sahara Ray látin Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira
Gagnaverið: Allt sem þú þarft að vita um TikTok Í nýjasta þætti af hlaðvarpinu Gagnaverið er fjallað um samfélagsmiðilinn TikTok. Hann hefur náð gífurlegum vinsældum á síðustu tveimur árum og þá sérstaklega vegna útbreiðslu Covid-19. 22. maí 2020 09:03
TikTok myndbönd þeirra frægu með börnunum sínum TikTok er snjallforrit þar sem notendur geta hlaðið upp myndböndum og sömuleiðis horf á myndbönd annarra notenda. 7. apríl 2020 15:31
TikTok faldi myndbönd frá notendum sem voru taldir ljótir, fátækir eða fatlaðir Stjórnendum forritsins TikTok var skipað að fela myndbönd sem birt voru á forritinu af notendum sem voru of ljótir, virtust fátækir eða fatlaðir. 17. mars 2020 19:35