Fór yfir CrossFit hvirfilbylinn, peningavél eigandans og af hverju Katrín Tanja er hætt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. júní 2020 09:00 Annie Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir hafa báðar orðið tvisvar sinnum heimsmeistarar í CrossFit. Mynd/Samsett/Instagram
Það hafa verið mikil læti í CrossFit heiminum að undanförnu og í miðjum hvirfilbylnum hefur íslenska CrossFit konan Katrín Tanja Davíðsdóttir farið fyrir þeim hópi sem heimtar breytingar á stjórn samtakanna. Katrín Tanja missti á endanum þolinmæðina á föstudaginn og tilkynnti að hún væri hætt að keppa á mótum á vegum CrossFit samtakanna. Leifur Geir Hafsteinsson fór ekki aðeins mikinn á knattspyrnuvöllunum hér heima á sínum tíma heldur er hann einn af frumkvöðlunum í CrossFit á Íslandi. Það eru því fáir sem vita betur um hvað málið snýst og geta metið stöðuna í sögulegu samhengi. Leifur Geir var stofnandi og eins konar guðfaðir fyrstu og elstu CrossFit stöðvar landsins í Sporthúsinu en seldi stöðina fyrir sjö árum og er því „í þokkalegri tilfinningalegri fjarlægð frá atburðarásinni“ eins og hann kemst sjálfur að orði. Leifur Geir skrifaði mjög athyglisverðan pistil á fésbókarsíðu sinni þar sem hann fer skipulega og mjög skýrt yfir stöðu mála og veltir einnig fyrir sér hvað sé framundan. Græðir hátt í 10 milljarða á ári Leifur Geir segir frá því að CrossFit malar gull fyrir eigandann Greg Glassman því allar CrossFit stöðvar heims borga CrossFit höfuðstöðvunum árlegt gjald fyrir það eitt að fá að nota CrossFit vörumerkið í nöfnum stöðvanna. Með yfir fjórtán þúsund virkar stöðvar í heiminum gera það líklegar heildartekjur upp á 30-40 milljónir dollara á ári eða á bilinu 4 til 5,4 milljarða íslenskra króna á ári. „Hinn megintekjustraumur CrossFit HQ eru námskeiðin, og þá sérstaklega Level 1 námskeiðin, sem eru frábærlega vel útfærð helgarnámskeið og tugir þúsunda sækja á hverju ári. Þátttökugjald er $1000 og CrossFit þjálfurum ber skylda til að sækja þetta námskeið á fimm ára fresti. Samanlagður tekjustraumur þessara tveggja meginpósta er því örugglega á bilinu 50-80 milljónir dollara á ári eða hátt í 10 milljarðar íslenskra króna,“ skrifar Leifur Geir. View this post on Instagram I love & care for this sport + the community more than you can ever imagine That has not & will not go away. A post shared by Katrín Tanja Davíðsdóttir (@katrintanja) on Jun 12, 2020 at 3:21pm PDT CrossFit er ekkert nema vörumerkið Leifur Geir segir einnig frá því að CrossFit sé ekkert nema vörumerkið og það þýðir að stöðvareigandi getur einfaldlega sagt upp samningnum við CrossFit inc. þegar honum hentar, tekið “CrossFit” úr nafninu sínu, og haldið áfram að þjálfa með nákvæmlega sama hætti og áður. „Svo lengi sem hann kallar það ekki CrossFit getur enginn sagt neitt. Á undangenginni viku hafa yfir 600 stöðvareigendur gert einmitt þetta, sem meðal annars hefur valdið þeim gríðarskjálfta sem skekur CrossFit-samfélagið,“ skrifar Leifur Geir. Leifur Geir segir að þessi atburðarás hafi verið fyrirsjáanleg eins og eldgos eins og hann orðar það. „Í aðra röndina var þetta allt saman agalega heillandi heimur, flott fólk, jákvætt, brosandi og hvetjandi. Skilaboðin voru falleg: Hjálpumst að við að þróa í sameiningu bestu mögulegu leið til að byggja upp hreysti og heilbrigði, höfnum gömlu líkamsræktarvélunum og líkamsdýrkuninni, mælum árangur í því hvað við getum - ekki hvernig við lítum út, ástundum opin samskipti, deilum aðferðum og breytum heiminum. Gott og vel. Þangað til einhver gagnrýndi hugmyndafræðina. Þá var viðkomandi einfaldlega tekinn af lífi, annað hvort af Greg Glassman sjálfum á spjallþráðum eða í tölvupósti, eða skósveinum hans (einn af þeim er núna orðinn forstjóri eftir að Glassman sagði af sér),“ skrifar Leifur Geir. Greg Glassman, stofnandi CrossFit er orðinn milljarðamæringur.mynd/cbs news Hefur sjaldan hitt jafn sjarmerandi manneskju Leifur Geir segir líka frá kynnum sínum af umræddum og umdeildum eiganda CrossFit, Greg Glassman. „Ég hef sjaldan hitt jafn sjarmerandi manneskju. Hann horfði djúpt í augun á mér, vildi vita allt um Ísland, CrossFit Sport, fjölskylduna, hvernig ég væri að upplifa leikana o.s.frv. Með öðrum orðum, hann hafði ekkert fyrir því að láta mér líða eins og ég væri mikilvægasta manneskjan í heiminum - og ég fékk aldrei á tilfinninguna að hann væri að sýnast. Þvert á móti fannst mér hann alveg einlægur í áhuga sínum. Og þá hugsaði ég “nú skil ég hvers vegna þessi maður laðar að sér alla þessa fylgjendur,“ skrifar Leifur Geir en hann segir líka frá því að Glassman sé maður sem á á sér að minnsta kostitvær mjög ólíkar hliðar. „Í aðra röndina er hann þessi klári, heillandi, sjarmerandi maður sem svífst einskis til að bjarga heiminum frá krónískum sjúkdómum, vílar ekki fyrir sér að hjóla í gosdrykkjaframleiðendur fyrir að rústa heilsu mannkyns og fleira. Auk þess má hann ekkert aumt sjá,“ skrifar Leifur Geir en bætir svo við: „Í hina röndina er hann hálfgerður frjálshyggjuofstækismaður, boðberi alls konar samsæriskenninga og rugls, til að mynda um hnattræna hlýnun sem hann er sannfærður um að sé bölvuð vitleysa. Hann er hvatvís, ofstækisfullur í viðbrögðum og svo mælskur að hann jarðar hvern sem er í kappræðum, vogi sér einhver að tala á móti honum,“ skrifar Leifur Geir. Leifur Geir Hafsteinsson fer líka yfir það af hverju Katrín Tanja Davíðsdóttir ákvað endanlega að snúa baki við CrossFit leikunum í ár. View this post on Instagram A growing coalition of CrossFit Games athletes and some of the biggest names in the sport have spoken up and have made their stance clear: They re out of the Games, until more change is made. (LINK IN BIO) - @dellespeegle - #crossfit #crossfitgames #morningchalkup A post shared by Morning Chalk Up (@morningchalkup) on Jun 12, 2020 at 7:02pm PDT Niðurlagði og áreitti kvenkyns starfsmenn „Það nýjasta, óþægilegasta, og það eina sem hefur komið mér raunverulega á óvart í því sem fram hefur komið um Glassman í fréttum undanfarinna daga, er vídeóblog Andy Stumpf sem varð endanlega til þess að Katrín Tanja ákvað að snúa baki við CrossFit leikunum í ár. Andy vann náið með Glassman hjá HQ um árabil, meðal annars sem einkaflugmaður hans, og er því öllum hnútum kunnugur um það sem fór fram bak við tjöldin. Í blogginu heldur hann því fram og rökstyður að ekki bara hafi Glassman ástundað ógnar- og óttastjórnun, þar sem fólk tiplaði á tánum og ástundaði vel launaða jámennsku, heldur hafi hann sýnt af sér kerfisbundna niðurlægjandi og áreitandi hegðun gagnvart kvenkyns starfsmönnum um langt skeið,“ skrifar Leifur Geir. Leifur Geir endar pistill sinn á því að fara yfir það sem gæti gerst næst. Það má sjá allan pistil hans hér fyrir neðan.
CrossFit Mest lesið Markverði Víðis boðið til Real Madrid „Agndofa við að sjá þetta allt“ Fótbolti Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Körfubolti Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Handbolti Dæmir úrslitaleik Evrópudeildar þrátt fyrir umdeilda fortíð Fótbolti Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Íslenski boltinn Rændi banka á leiðinni á völlinn og dæmdur í 32 ára fangelsi Sport Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann Handbolti Alltaf markmiðið að spila fyrir Barcelona Sport Fara fram á tveggja og hálfs árs fangelsi yfir Ingebrigtsen Sport Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Enski boltinn Fleiri fréttir Kristín Embla og Hákon unnu Íslandsglímuna Djokovic og Murray hættir að vinna saman Víðir og Reynir ekki í eina sæng Sjáðu stemmningsmyndbandið fyrir oddaleikinn Tveir Íslendingar gætu komist á US Open eftir dramatík hjá Dagbjarti Fara fram á tveggja og hálfs árs fangelsi yfir Ingebrigtsen Logi á leið í burtu en ekki til Freys „Mætum óttalaus“ Alltaf markmiðið að spila fyrir Barcelona Markverði Víðis boðið til Real Madrid „Agndofa við að sjá þetta allt“ Rændi banka á leiðinni á völlinn og dæmdur í 32 ára fangelsi Sonur Ancelottis orðaður við Rangers Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Settu nýtt met í heppni og fá velja fyrstir Uppbótartíminn: „Ég hef miklar áhyggjur af þeim“ Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann Meistararnir á bjargbrún og langri bið Knicks að ljúka Þriggja ára reglan heyrir sögunni til Dæmir úrslitaleik Evrópudeildar þrátt fyrir umdeilda fortíð Dagskráin í dag: Úrslitin ráðast í Ólafssal Amorim gefur í skyn að hann fari frá Man Utd breytist kúltúrinn ekki Alonso tekur við Real fyrir HM félagsliða Þróttur skoraði sex og flaug áfram Steinar Kaldal: Ótrúleg tilfinning Valur marði Fram í framlengingu Íslendingaliðið sló óvænt stórlið Bodø/Glimt úr bikarnum Tindastóll, FH og HK áfram í bikarnum Hinn skapheiti Agravanis missir af næsta leik úrslitaeinvígisins Uppgjörið: Ármann - Hamar 91-85 | Ármann leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Sjá meira
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast Íslenski boltinn