„De Bruyne klappar fyrir leikmönnum sem geta ekki einu sinni reimað skóna hans“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. júní 2020 12:00 Leikmenn Watford standa heiðursvörð fyrir Englandsmeistara Chelsea fyrir þremur árum. getty/Darren Walsh
Danny Murphy, fyrrverandi leikmaður Liverpool, segir að sú hefð að standa heiðursvörð fyrir Englandsmeistara sé della. Leikmenn Manchester City munu standa heiðursvörð fyrir nýkrýnda Englandsmeistara Liverpool þegar þeir ganga inn á völlinn fyrir leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni á fimmtudaginn. Það er fyrsti leikur Liverpool eftir að liðið varð Englandsmeistari. Murphy segir að stuðningsmönnum sé sama um þessa hefð og vill að hún verði blásin af. „Þetta er rétt að því leyti að þú vilt sýna sigurvegurum virðingu og hylla þá. Að City muni standa heiðursvörð á fimmtudaginn sýnir auðmýkt. En mér finnst þetta vera kjaftæði,“ sagði Murphy á talkSPORT. „Ég veit ekki hvenær og af hverju þetta byrjaði en mér myndi finnast óþægilegt að gera þetta. Ég myndi gera þetta þótt ég vildi það ekki, því þetta er ekki einlægt. Stuðningsmennirnir vilja ekki að þú gerir þetta, þú vilt það ekki og þetta er þýðingarlaust.“ Murphy finnst skrítið að góðir leikmenn skuli standa heiðursvörð fyrir leikmenn sem eru ekki nálægt því jafn góðir og þeir. „Kevin De Bruyne er sennilega besti miðjumaður heims og hann mun klappa fyrir leikmönnum sem geta ekki einu sinni reimað skóna hans,“ sagði Murphy. De Bruyne og félagar í City urðu Englandsmeistarar 2018 og 2019 en eru núna 23 stigum á eftir Liverpool þegar sjö umferðum er ólokið.
Enski boltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Jón Arnór byrjar að þjálfa Körfubolti Serbía - Ísland | Mæta Jokic í gini úlfsins Körfubolti Man. City verður meistari Sport „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Körfubolti Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Handbolti „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ Körfubolti Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Enski boltinn Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Fleiri fréttir Fyrrum QPR-leikmaður fundinn heill á húfi Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Sjá meira