Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Valur Páll Eiríksson skrifar 29. september 2026 09:30 Kristján Karl Björnsson fagnaði sigri í Bakgarðshlaupinu á dögunum. Hann átti aldrei að geta hlaupið aftur eftir slys á táningsárum. Vísir/Sigurjón Kristján Karl Björnsson fagnaði sigri í Bakgarðshlaupinu í Heiðmörk þar síðustu helgi eftir að hafa hlaupið látlaust í 39 klukkustundir og farið rúmlega 261 kílómetra. Hann þakkar fyrir hvern þann kílómetra sem hann getur hlaupið þar sem hann átti aldrei að geta hlaupið aftur eftir slys í æsku.
Kristján Karl fagnaði sigri aðfaranótt mánudags og lauk keppni í kringum miðnætti þann 20. september eftir að hafa lagt af stað í hlaupið á laugardagsmorgni. Hann hafði betur gegn Ríkharði Árnasyni sem lauk keppni eftir 38 hringi. Kristján kom meiddur í mark eftir að hafa stokkbólgnað á ökkla og það tók nokkurn tíma að ná sér eftir hlaupið. Klippa: Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn „Maður er bara allur að koma til. Ökklinn er smá bólginn ennþá en ég er kominn í strigaskó,“ segir Kristján viku eftir hlaupið. „Maður var hálfur rúmliggjandi allavega í einn dag eftir á. Komst síðan á ról á þriðjudaginn.“ Aðspurður um hvernig þetta sé að vera á hlaupum svo lengi segir Kristján: „Þetta eru bara hæðir og lægðir náttúrulega. Maður væri ekki að gera þetta nema þetta væri gaman og mest allan tímann þá líður manni vel.“ Hvað er svona gaman við þetta? „Það er bara í fyrsta lagi að geta hlaupið, ég er þakklátur fyrir það alla daga og bara verið úti í Heiðmörk, ótrúlega fallegt og fólkið í kringum mann sem er að hvetja mann og er með manni í liði og það er allt sem gerir þetta gaman.“ Átti aldrei að geta hlaupið aftur Kristján lenti í slysi á unglingsaldri og átti eftir það aldrei að geta hlaupið aftur. Utanvegahlaupin hafa hins vegar hjálpað honum mjög. „Það var fyrir 25 árum sirka, þegar ég var 14 ára þá féll ég niður klett. Ég mölbraut á mér ökklann ásamt því að handleggsbrotna, fá stein í gegnum lærið og heilahristing og eitthvað fleira,“ segir Kristján og bætir við: „Þá var mér sagt í rauninni að ég myndi örugglega ekki geta hlaupið aftur, allavega pottþétt aldrei hlaupið eðlilega aftur. Og þar sem ökklinn var að gróa eitthvað vitlaust. Ég var alltaf með spelku í reyndi við einhverjar íþróttir og var alltaf að slasa mig aftur og aftur í ökklanum sérstaklega,“ „Það var í rauninni ekki fyrr en ég kynntist utanvegahlaupinu og góðum sjúkraþjálfara líka – Rúnari hjá Afl – og fór að styrkja ökklann með utanvegahlaupinu, sem sagt allir þessir litlu vöðvar,“ „Svo reyndar örugglega bara svona með því að slasa mig mjög oft í ökklanum, einhvern veginn styrktist hann bara þannig að hann fór að vera eðlilegur,“ segir Kristján og ítrekuð ökklameiðsli meðan hann hóf hlaupaferilinn hafi því styrkt hann frekar en hitt. „Ég hafði farið til ökklasérfræðings og hann sagði að hann gæti kannski lagað hann í aðgerð, en það væru bara um 25 prósent líkur að það myndi heppnast. Ég myndi vera í hjólastól í ár þannig að ég fór aldrei í þá aðgerð. En utanvegahlaupin, hafa bara einhvern veginn læknað ökklann,“ segir Kristján. Ertu með tölu á því hvað þú ert búinn að brjóta ökklann oft? „Ég hef brotið hann svona þrisvar en tognað og rifið vöðvana í kring það oft að ég man ekki töluna.“ Þannig að vera með stokkbólginn ökkla í lok hlaups núna, það er nú bara tittlingaskítur miðað við það sem á undan er gengið eða hvað? „Já, eiginlega, maður er svona svolítið vanur þessu,“ segir Kristján. Pósthólfið fullt Hvernig er vikan búin að vera síðan, hefur hamingjuóskum rignt yfir þig? „Jú, það er alveg bara ótrúlega skemmtilegt. Maður áttar sig ekki á því hvað það fylgjast margir með þessu. Og búinn að fá ótrúlega mörg skilaboð og búið að vera mjög skemmtilegt,“ segir Kristján. Hvað tekur við? „Bara að jafna sig fyrst og fremst núna. Svo klárlega annað bakgarðshlaup einhvern tímann. Það er bara spurning hvenær.“
Bakgarðshlaup Hlaup Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham „Það eru bara engin orð til þess að lýsa þessu“ Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl Semenyo frá í allt að átta vikur „Hann kvartar yfir öllu“ Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Frá út tímabilið vegna blóðtappa í lungum KA í hræðilegri stöðu og Kane verður að spila í kvöld Kane lentur og má spila í kvöld Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Mest pirrandi leikmaðurinn hrækti á andstæðing Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sjá meira