Erlent

Ó­­ró­­leiki og efa­­semdir í Hvíta húsinu vegna met­fjölda smita

Sylvía Hall skrifar
Donald Trump og Dr. Anthony Fauci.
Donald Trump og Dr. Anthony Fauci. Vísir/Getty

Starfsmenn Hvíta hússins eru sagðir hafa áhyggjur af því hversu oft Dr. Anthony Fauci hefur haft rangt fyrir sér í tengslum við kórónuveirufaraldurinn. Fauci er yfirmaður ofnæmis- og smitsjúkdómastofnunar Bandaríkjanna og helsti smitsjúkdómasérfræðingur landsins.

Þetta kemur fram í minnisblaði frá Hvíta húsinu sem lak til fjölmiðla um helgina. Þar er jafnframt talið upp dæmi þess að Fauci tali í mótsögn við sjálfan sig og hafi skipt um skoðun frá því að kórónuveirufaraldurinn hófst. Fjölmiðlar vestanhafs segja minnisblaðið augljósa tilraun Hvíta hússins til þess að koma höggi á sérfræðingana sem hafa stýrt aðgerðum vegna faraldursins, enda hafi þeir ekki alltaf verið sammála forsetanum.

Meðal þess sem er talið upp í minnisblaðinu eru tilmæli Fauci um andlitsgrímur og ummæli um alvarleika faraldursins. Þrátt fyrir að Hvíta hússins hafi fullyrt að forsetinn bæri enn traust til Fauci og smitsjúkdómastofnunarinnar og að minnisblaðið endurspeglaði ekki skoðanir allra Hvíta hússins, tók Peter Navarro, efnahagslegur ráðgjafi Trump, í svipaðan streng í viðtali við CBS og sagðist taka tilmælum Fauci með fyrirvara.

„Þegar ég varaði við mögulega banvænum heimsfaraldri í minnisblaði seint í janúar sagði Fauci fjölmiðlum að það væri engin ástæða til þess að hafa áhyggjur,“ sagði Navarro.

Brett Giroir, aðstoðarheilbrigðisráðherra landsins og meðlimur í aðgerðahóp Hvíta hússins vegna kórónuveirufaraldursins, sagði í samtali við fréttastofu NBC að hann bæri mikla virðingu fyrir Fauci. Hann hefði þó ekki alltaf rétt fyrir sér.

„Dr. Fauci hefur ekki 100% rétt fyrir sér og hann hefur ekki hag þjóðarinnar í huga, hann viðurkennir það. Hann horfir á þetta frá mjög þröngu lýðheilsusjónarmiði.“

Mikill óróleiki er sagður vera í Hvíta húsinu vegna þess hversu mörg tilfelli greinast í Bandaríkjunum um þessar mundir. Rúmlega 3,3 milljónir Bandaríkjamanna hafa nú greinst með veiruna og yfir 135 þúsund látið lífið. Faraldurinn virðist verða verri með degi hverjum vestanhafs, sérstaklega í suður- og vesturríkjum Bandaríkjanna, og hafa mörg ríki þurft að grípa til harðari aðgerða og seinka afléttingum á takmörkunum vegna veirunnar.


Tengdar fréttir

Sóttvarnastofnun endurskoðar tilmæli eftir óánægju Trump

Leiðbeiningar sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna varðandi opnun skóla í kórónuveirufaraldrinum verða endurskoðaðar eftir að Donald Trump forseti gagnrýndi þær fyrir að vera of strangar í dag. Forsetinn hótaði jafnframt að stöðva fjárveitingar til skóla sem vilja ekki opna að fullu í haust.

Smit á uppleið í 37 ríkjum Bandaríkjanna

Nýjum kórónuveirusmitum fer fjölgandi í 37 af 50 ríkjum Bandaríkjanna síðustu tvær vikurnar, miðað við fjórtán daga tímabil snemma í júní, að því er greining Reuters leiðir í ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×