Tekinn á 165 kílómetra hraða í miðborginni Sylvía Hall skrifar 18. júlí 2020 07:29 Lögreglan þurfti að sinna nokkrum útköllum í nótt vegna umferðarmála og hávaðakvartana. vísir/Vilhelm
Ökumaður var stöðvaður við ofsaakstur í miðborginni í nótt eftir að hafa ekið á 165 kílómetra hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 60 kílómetrar á klukkustund. Ökumaðurinn var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða að því er segir í dagbók lögreglu og var honum sleppt að skýrslutöku lokinni. Fleiri umferðarmál komu upp á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt en meðal annars voru tveir ökumenn stöðvaður. Annar var undir áhrifum áfengis en hinn fíkniefna og var þeim báðum sleppt úr haldi lögreglu eftir sýnatöku. Málin eru nú í rannsókn. Þá er ljóst að eitthvað var um fólk í miðbæ Reykjavíkur, en þegar skemmtistöðum var lokað var lögregla kölluð til fjórum sinnum vegna líkamsárása. Enginn er alvarlega slasaður eftir árásirnar samkvæmt upplýsingum frá lögreglu en málin eru öll í rannsókn. Fyrr um kvöldið hafði lögregla verið kölluð til vegna slagsmála við krá í austurborginni. Þegar lögregla kom á vettvang höfðu mennirnir farið og þurfti lögregla því ekki að sinna málinu frekar. Þá bárust lögreglu nokkrar kvartanir vegna gleðskaparhávaða í nótt. Um níuleytið í gærkvöldi var tilkynnt um heimilisofbeldi í vesturhluta Reykjavíkur. Lögregla og Barnavernd fóru á vettvang og er málið til rannsóknar. Um miðnætti var svo tilkynnt um mann í austurbænum sem var talinn vera mögulega að selja þýfi, en lögregla hafði ekki uppi á manninum þrátt fyrir leit.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira