Bandaríski kylfingurinn Collin Morikawa tryggði sér í nótt sigur á fyrsta risamóti ársins í golfi þegar hann vann PGA-mótið í Kaliforníu.
Spennan var mikil á lokahringnum og um tíma voru sex kylfingar jafnir á toppnum á lokasprettinum.
Collin Morikawa náði hins vegar erni á sextándu holunni og vann að lokum með tveggja högga forskoti. Morikawa komst þar með í hóp með Tiger Woods, Jack Nicklaus og Rory McIlroy eins og sjá má hér fyrir neðan.
"The California kid is the new star in the game of golf!"@Collin_Morikawa is the winner of the 2020 PGA Championship. pic.twitter.com/KyCXV8cvyG
— PGA TOUR (@PGATOUR) August 10, 2020
Collin Morikawa spilaði holurnar 72 á þrettán höggum undir pari en næstir komu Englendingurinn Paul Casey og Bandaríkjamaðurinn Dustin Johnson á ellefu höggum undir pari. Dustin Johnson var efstur fyrir lokadaginn.
Collin Morikawa var aðeins að taka þátt í sínu öðru risamóti á ferlinum en góð spilamennska í sumar var búin að koma honum upp í tólfta sætið á heimslistanum.
Hinn 23 ára gamli Collin Morikawa varð í öðru sæti á Charles Schwab Challenge í júní og vann síðan Workday Charity Open í síðasta mánuði. Hann var ekki í toppbaráttunni framan af móti en blandaði sér í baráttuna með því að spila þriðja daginn á 65 höggum. Fylgdi því síðan eftir með að spila lokahringinn á 64 höggum.
Collin Morikawa var tveimur höggum á eftir Dustin Johnson fyrir síðasta daginn. Morikawa spilaði lokahringinn síðan á sex höggum undir pari, fékk einn örn, fjóra fugla og paraði síðan hinar holurnar.
Jack.
— PGA TOUR (@PGATOUR) August 10, 2020
Tiger.
Rory.
and now ...
Collin. pic.twitter.com/iw2LBXEgrO
Collin Morikawa kom þannig í veg fyrir að Paul Casey ynni loksins sitt fyrsta risamót á ferlinum. Morikawa var aðeins fjögurra ára gamall þegar Casey vann sitt fyrsta mót á Evróputúrnum árið 2001. Paul Casey hefur oftast verið meðal fimmtíu efstu á heimslistanum síðan.
Casey átti bara ekki svör við frábærri spilamennsku Collin Morikawa sem gerði engin mistök á lokadeginum. Reyndar gerði Morikawa ein mistök en það var bara þegar hann var að lyfta bikarnum eins og sjá má hér fyrir neðan.
CongratulatiOH NO! #PGAChamp pic.twitter.com/p6NjsSNs7G
— PGA TOUR (@PGATOUR) August 10, 2020