Þurftu að skilja bíla eftir á Holtavörðuheiði Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 7. janúar 2020 19:30 Útköllum vegna ökumanna í vanda vegna veðurs hefur farið fjölgandi nú undir kvöld. vísir/vilhelm
Björgunarsveitir sem kallaðar voru út nú undir kvöld til að aðstoða hátt í tuttugu ökumenn sem lent höfðu í vandræðum vegna ófærðar og veðurs á Holtavörðuheiði hafa náð að fylgja einhverjum bílum niður af heiðinni. Ökumennirnir voru á leið yfir heiðina þegar henni var lokað síðdegis. Það þurfti síðan að skilja einhverja bíla eftir og ferja ökumenn þeirra niður og voru einhverjir hópar komnir í Staðarskála upp úr klukkan sjö í kvöld að sögn Davíðs Más Bjarnasonar, upplýsingafulltrúa Landsbjargar. Þá hafa ökumenn lent í vandræðum á fleiri stöðum á landinu vegna óveðursins og hafa björgunarsveitir verið kallaðar út vegna þess. Þannig bárust tilkynningar um bíla sem sátu fastir á Hellisheiði um það leyti sem heiðinni var lokað fyrr í kvöld. Skömmu eftir klukkan sjö var síðan tilkynnt um tvo bíla sem sátu fastir á Snæfellsnesi, skammt frá Grundarfirði, auk þess sem tilkynnt var um þrjá bíla í vandræðum í Vatnsskarði, nálægt Varmahlíð. „Það er minna um foktjón, stakar tilkynningar hér og þar um landið en óhætt að segja að þó nokkuð af ökumönnum víða um land séu í vanda sem björgunarsveitarmenn hafa þurft að aðstoða,“ segir Davíð Már. Mikið óveður gengur nú yfir landið með tilheyrandi stormi og hríð. Gular viðvaranir tekið gildi um allt land. Vegum hefur víða verið lokað, meðal annars um Hellisheiði og Þrengsli, Mosfellsheiði, Lyngdalsheiði, Bröttubrekku, Öxnadalsheiði, Vatnsskarð og Þverárfjall.Fréttin hefur verið uppfærð.
Samgöngur Veður Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Erlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Enn óljóst hvað verður um umsóknina Innlent Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Innlent Fleiri fréttir „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sjá meira