Skoðun

Grípum boltann - við erum í dauða­færi!

Sara Dögg Svanhildardóttir skrifar

Í aðdraganda nýrrar menntastefnu hafa m.a. komið út þrjár skýrslur, sem eru fullar af uppbyggilegum hugmyndum um hvernig við gerum menntakerfið okkar betra í þágu barna og ungmenna. Þetta er skýrslan Menntun til framtíðar, aðgerðir og viðbrögð í kjölfar fundaraðar um menntun fyrir alla og mótun menntastefnu til 2030, Skýrsla starfshóps um geðrækt í skólum og Menntun fyrir alla – horft fram á veginn. Allar varpa ljósi á þær aðgerðir og breytingar sem brýnt er að koma í framkvæmd með nýrri menntastefnu. Undirtónninn er skýr: Líðan og velferð er lykill að farsæld, andlegum jafnt sem félagslegum þroska. Lærdómssamfélag, aukin starfsþróun kennara, fjölbreyttari hópur fagfólks, sveigjanleiki í náms- og stundarskrám, snemmtæk íhlutun, fjarþjónusta í hinum dreifðu byggðum landsins og lengi má áfram telja þætti sem skipta máli til að tryggja framúrskarandi námsumhverfi barna og ungmenna.

Ítrekað er dregið fram mikilvægi þess að faglegt og gott skólastarf byggi á faglegu samstarfi ólíkra aðila. Látum kerfin tala saman. Allir sem að menntakerfinu koma eru sammála um að samvinna á  milli ríkis og sveitarfélaga sé ekki bara æskileg, heldur nauðsynleg, svo menntakerfið geti gert enn betur, hversu ólíkar sem þarfir einstaklinga í fjölbreyttu samfélagi nemenda eru. 

Samvinna, með sameiginlega ábyrgð á velferð barna og ungmenna, er lykillinn að betra menntakerfi. Þess vegna er lögð áhersla á að kerfin þrjú, sem samfélagið hvílir á, starfi saman, þ.e. mennta-, félags- og heilbrigðiskerfið. Og kominn tími til. 

En eru þetta nýjar fréttir? 

Nei, þær eru það sannarlega ekki fyrir starfsfólk allra þessara kerfa, sem hafa gert sér grein fyrir að samstarf er lykillinn að framþróun.  Öflugri menntastefnu er ætlað að leggja áherslu á velferð, geðheilbrigði og styðjandi námsumhverfi til að tryggja hæfni til framtíðar fyrir alla. Menntun fyrir alla næst aðeins með samstilltu átaki.

Sífellt fleiri átta sig á mikilvægi þessarar samvinnu. Lífið í skólanum er svo langt frá því að vera bara lestrartækni eða endurtekin hraðlestrarpróf. Lífið í skólanum er nefnilega lífið sjálft í svo ótal, ótal myndum með sínum erfiðleikum, gleðistundum, velgengni og mistökum. Lífið í skólanum er líf barna og ungmenna sem er samfélaginu okkar svo dýrmætt og því skiptir máli að allir sem koma að þessu skólalífi séu færir um að grípa boltann. Boltarnir eru mismunandi og til þess að ná þeim þarf alls konar fagfólk til að skapa dauðafærið. Dauðafærið til að ná í mark. Gera betur og efla menntakerfið okkar svo um munar.

Höfundur er oddviti Garðabæjarlistans.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×