Skoðun

Samviska Háskóla Íslands

Eyrún Baldursdóttir skrifar

Á fundi sínum í dag, fimmtudaginn 6. febrúar, mun háskólaráð taka til umræðu endurnýjun á þjónustusamningi Háskóla Íslands við Útlendingastofnun um aldursgreiningu umsækjanda um alþjóðlega vernd, þ.e. hvort að HÍ eigi að halda áfram að meta hvort fylgdarlaus börn á flótta séu í raun og veru börn eða hvort stjórnvöld geti vísað þeim úr landi út í óvissuna - oft og tíðum í yfirfullar flóttamannabúðir, stríðshrjáð svæði eða lönd þar sem þau sæta ofsóknum. 

Í tæp tvö ár hafa stúdentar mótmælt framkvæmd þessara vísindalega ónákvæmu og siðferðislega umdeildu rannsókna innan veggja skólans. Háskóli Íslands er fyrst og fremst menntastofnun, og á ekki að taka þátt í landamæravörslu stjórnvalda með því að framkvæma rannsóknir sem hafa áhrif á það hvort ungt fólk fái að búa hér á Íslandi og tækifæri til betra lífs. Með því að aldursgreina með tannrannsókn og röntgenmyndatökum af höfði, rannsókn sem hefur verið meðal annars verið gagnrýnd fyrir of mikil skekkjumörk, er háskólinn að hafa bein áhrif á þetta ferli. Þessar rannsóknir samræmast ekki stefnu skólans í jafnréttis- eða alþjóðamálum og heldur ekki vísindasiðareglum hans. Hvernig getur það verið afsakanlegt fyrir menntastofnun sem segist hafa jafnrétti að leiðarljósi taka að sér þetta hlutverk?

Réttara væri að Háskóli Íslands breiddi út faðminn og tæki á móti öllum þeim sem þangað vilja sækja sér menntun. Háskólinn, æðsta opinbera menntastofnun Íslands, á að vera kyndilberi siðferðis og jafnréttis og í fararbroddi þegar kemur að mannúð og alþjóðamálum. Þar eiga öll að finna öruggt athvarf og umhverfi sem býður þau velkomin óháð uppruna eða aðstæðum að nokkru öðru leyti. Þar eiga öll að fá tækifæri til þess að sækja sér menntun, ný tækifæri og uppfylla drauma sína.

Stúdentar munu halda áfram að ljá rödd sína til þeirra sem ekki hlustað er  á og berjast fyrir því að Háskóli Íslands verði sá staður sem hann segist vera, staður þar sem jafnrétti og mannréttindi eru höfð að leiðarljósi jafnt í orði og á borði.

Í dag mun ég  afhenda háskólaráði undirskriftarlista með 1.500 undirskriftum og skora á háskólaráð að endurnýja ekki samninginn við Útlendingastofnun og standa vörð um mannréttindi.

Höfundur er oddviti Röskvu í Stúdentaráði og sviðsráðsforseti Heilbrigðisvísindasviðs.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×