Handbolti

Evrópuævintýrum FH og Aftureldingu frestað

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ásbjörn Friðriksson, leikstjórnandi FH.
Ásbjörn Friðriksson, leikstjórnandi FH. vísir/vilhelm

FH og Afturelding spila ekki sína Evrópuleiki um miðjan október heldur verða leikirnir um miðjan nóvember og desember.

Morgunblaðið greinir fyrst frá. Afturelding kemur inn í 2. umferð Evrópubikarsins og FH inn í 3. umferðina.

FH mun þar af leiðandi ekki spila leiki sína í lok nóvember heldur 12. og 13. desember en FH fór ansi langt í keppninni árið 2017.

Afturelding mun spila sína fyrstu leiki 21. og 22. nóvember en ekki 17. og 18. október eins og fyrst stóð til.

Fyrsta umferð Olís-deildarinnar fer fram 10. september. FH mætir Val á heimavelli og Afturelding fær Þór Akureyri í heimsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×