Handbolti

Fjórði sigur Valskvenna í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ásdís Þóra Ágústsdóttir kom að þrettán mörkum Valskvenna í kvöld.
Ásdís Þóra Ágústsdóttir kom að þrettán mörkum Valskvenna í kvöld. Vísir/Daníel Þór

Valur er fjórum stigum á eftir toppliði Hauka eftir níu marka útisigur á Stjörnunni í Olís deild kvenna í handbolta í kvöld. KA/Þór vann á sama tíma botnslag á móti HK.

Valur vann 34-25 sigur á Stjörnunni og fagnaði um leið fjórða deildarsigri sínum í röð. Valur var fimm mörkum yfir í hálfleik, 16-11.

Inga María Roysdóttir var með 13 mörk og 7 stoðsendingar fyrir Stjörnuna en það dugði ekki til. 

Ásdís Þóra Ágústsdóttir skoraði sjö mörk og gaf sex stoðsendingar fyrir Val og þær Katla María Magnúsdóttir og Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir voru báðar með sex mörk. Elísa Elíasdóttir og Laufey Helga Óskarsdóttir skoruðu fjögur mörk.

KA/Þór vann þriggja marka útisigur á HK, 27-24, eftir að staðan var 11-11 í hálfleik. Þetta var annar sigur Akureyrarliðsins í röð og bæði HK og Stjarnan eru nú tveimur stigum á eftir.

Sólveig Lára Kristjánsdóttir og Lydía Gunnþórsdóttir skoruðu sjö mörk hvor fyrir KA/Þór og þær Joan Rúnadóttir Johannesen og Agatha Kjærbæk Djurhuus voru báðar með fjögur mörk.

Tinna Dröfn Hauksdóttir og Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir skoruðu mest fyrir HK eða fimm mörk hvor. Sóley Ívarsdóttir var með fjögur mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×