Handbolti

Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum al­veg getað verið heppnari“

Sindri Sverrisson skrifar
Arnar Pétursson kynnti EM-hópinn sinn í dag nú þegar rétt rúmur mánuður er í að mótið hefjist.
Arnar Pétursson kynnti EM-hópinn sinn í dag nú þegar rétt rúmur mánuður er í að mótið hefjist. vísir/Sigurjón

Arnar Pétursson er á leið með íslenska kvennalandsliðið í handbolta á stórmót fjórða árið í röð í byrjun desember. Hann valdi EM-hópinn sinn í dag en er með fleiri leikmenn tilbúna að stökkva til áður en átökin gegn afar sterkum mótherjum hefjast í Rúmeníu.

Hópurinn sem Arnar kynnti í höfuðstöðvum Arion í dag kom ekki mikið á óvart enda í raun sá sami og var að koma heim frá Póllandi eftir tvo vináttulandsleiki. Markvörðurinn Ethel Gyða Bjarnasen dettur út en Arnar hefur rætt við hana og fleiri leikmenn um að vera til taks ef á þarf að halda. Hann valdi 17 manna hóp og kaus að bíða með að velja 18. leikmanninn.

Klippa: Arnar klár með hópinn sem mætir heimsklassaþjóðum

„Heilt yfir var ég mjög ánægður með það sem við gerðum í Póllandi, orkuna í hópnum og þann handbolta sem við spiluðum svo það auðveldaði valið aðeins.

Staðan er þannig að við erum auðvitað búin að vera með ákveðna leikmenn í meiðslum sem hafa unnið sig hratt og örugglega til baka. En ég vil samt geta kallað inn leikmann númer 18 með skömmum fyrirvara. Ég mat það þannig að núna, mánuði fyrir mót, væri gott að bíða og sjá hvernig málin þróast.

Ég talaði við nokkra leikmenn og fór yfir stöðuna. Það eru leikmenn sem eru meðvitaðir um hvernig staðan er og hvað við erum að hugsa,“ sagði Arnar.

Ísland spilar leiki sína í Oradea í Rúmeníu og byrjar á að mæta Slóveníu 3. desember, því næst Svartfjallalandi 5. desember og loks Ungverjalandi, sem er nánast á heimavelli sökum nálægðar við Oradea, 7. desember.

Hlakka til að sýna að við nálgumst þessar þjóðir

Þessir þrír mótherjar voru allir á meðal tíu efstu á síðasta Evrópumóti, fyrir tveimur árum, og Ungverjar unnu þar til bronsverðlauna. Ísland dróst í svo erfiðan riðil meðal annars vegna þess að liðið var í neðsta styrkleikaflokki á meðan Færeyjar, sem enduðu fyrir ofan Ísland í undankeppninni, voru í næstneðsta styrkleikaflokki.

„Auðvitað er þetta hörkuriðill og við hefðum alveg getað verið heppnari þar og eins spilað okkur í betri stöðu. Færeyska liðið er gríðarlega sterkt og átti þetta fyllilega skilið.

Við eigum sem hópur eftir að setjast niður og fara yfir hverjar vonir okkar og væntingar eru. Við gerðum það úti í Póllandi, settum okkur langtímamarkmið. Þessir leikir við heimsklassaþjóðir verða auðvitað krefjandi og erfiðir en það er tilhlökkun í hópnum yfir að bera okkur saman við þær og sýna að við nálgumst þessar þjóðir,“ sagði Arnar.

Einn sigur gæti skipt gríðarlegu máli

Hann sagði komandi vináttulandsleiki við Svía í lok nóvember og leikina á EM líka dýrmætan undirbúning fyrir HM-umspilið í apríl og ljóst að bara einn sigur á EM gæti skipt sköpum varðandi möguleikann á fimmta stórmótinu í röð.

„Það getur skipt okkur gríðarlegu máli upp á það hvort við verðum í efri eða neðri styrkleikaflokki þegar kemur að umspilinu fyrir HM. Það skiptir máli en það skiptir líka máli að við séum að bæta okkar leik og verða beittari í öllu sem við erum að gera.

Við fáum alltaf helling út úr hverjum leik og hverju stórmóti. Það er að skila sér. Mér finnst hópurinn vera að þéttast og við taka góðum framförum í hvert skipti sem við komum saman. Það urðu auðvitað miklar breytingar fyrir rúmu ári síðan og… ég ætla ekki að segja að við höfum þurft að byrja upp á nýtt en við þurftum að fara í grunninn aftur. Það hefur gengið ágætlega. Við erum alltaf að verða beittari og þetta stórmót mun klárlega hjálpa til við það áfram.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×