Skjalið umdeilda fannst hjá Verðlagsstofu skiptaverðs Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 25. ágúst 2020 14:58 Verðlagsstofa skiptaverðs fann skjalið umdeilda í sínum fórum. Vísir/Egill Ástæða þess að ekki var getið til um tilvist skjals, sem vísað var til í Kastljósþætti Ríkisútvarpsins sem var sýndur þann í mars 2012, í yfirlýsingu sem Verðlagsstofa skiptaverðs gaf út þann 12. ágúst er sú að skjalið hafði ekki fundist. Skjalið var geymt utan hefðbundsins skjalakerfis stofunnar, á aflögðu gagnadrifi sem núverandi starfsmenn hafa fæstir aðgang. Þetta kemur fram í nýrri yfirlýsingu sem Verðlagsstofu skiptaverðs sendi frá sér í dag. Skjalið umrædda, sem hefur verið eitt af aðalumræðuefnum í deilum Samherja og Ríkisútvarpsins undanfarnar vikur, fannst nýlega hjá Verðlagsstofu skiptaverðs og er um að ræða þriggja blaðsíðna ódagsett og óundirritað skjal með töflum og tölulegum upplýsingum um útflutning á óunnum karfa til Þýskalands árin 2008 og 2009 samkvæmt yfirlýsingu Verðlagsstofu. Fram kemur í skjalinu hvert meðalverð og magn í beinni sölu á karfa og á markaði innanlands þessi ár var ásamt yfirliti um útgefin meðalviðmiðunarverð á karfa hjá Verðlagsstofu eftir mánuðum árið 2008 og 2009. Í lok skjalsins dregur þáverandi starfsmaður Verðlagsstofu ályktun af þessum gögnum í nokkrum línum segir í yfirlýsingunni. Ályktun starfsmanns VSS í lok skjalsins Í ljós kemur að Samherji hf. er að greiða lægstu verðin en það fyrirtæki er eina fyrirtækið sem er að selja karfa í eigin vinnslu í Þýskalandi það er um að ræða beina sölu. Þau verð eru þó langt yfir þeim verðum sem fengust fyrir karfann í beinni sölu innanlands. Ef árin eru borin saman þá hafa þau verð sem Samherji hf. er að greiða hækkað verulega milli ára miðað við verð á uppboðsmarkaði í Þýskalandi. Úr skjali sem starfsmaður VSS tók saman Skjalið ber yfirskriftina „Greining á sölu á óunnum karfa sem fluttur var til Þýskalands á árunum 2008 og 2009“ og var það tekið saman af þáverandi starfsmanni Verðlagsstofu skiptaverðs og send úrskurðarnefnd í apríl 2010. Viðkomandi starfsmaður lét af störfum hjá Verðlagsstofu vorið 2010. Samherji birtir skjalið Samherji sendi einnig út yfirlýsingu vegna málsins fyrr í dag þar sem sagt er að engin efnisleg niðurstaða sé dregin fram í skjalinu og að ekkert í skjalinu styðji þær ásakanir sem sem settar voru fram á hendur Samherja í Kastljósi. Samherji birtir skjalið á vef sínum og segir ekkert í hinu nýfundna skjali staðfesta þær ásakanir sem voru fluttar í þætti Kastljóss. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.Vísir/Vilhelm „Þvert á móti kemur fram í skjalinu að aðeins lítill hluti umrædds útflutnings á karfa var veiddur af skipum Samherja. Þá er ekkert fjallað um stærð eða gæði karfans í vinnuskjalinu.“ Samherji hefur gert athugasemdir við að orðið skýrsla hafi verið notað í umræddum Kastljósþætti og sagt skýrsluna ekki til. Verðlagsstofa skiptaverðs sagði þann 12. ágúst að upplýsingar á Excel-formi hefðu verið teknar saman og nú að þriggja blaðsíðna minnisblað sem starfsmaður tók saman og dró ályktun af hafi verið sent á úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna í byrjun árs 2012. Tveir fyrrverandi fulltrúar sjómanna í nefndinni hafa sagst eiga sömu gögn. Ekki skipti máli hvort gögnin heiti skýrsla eða minnisblað. Það segi sína sögu. Samherji og Seðlabankinn Samherjaskjölin Ríkisútvarpið Fjölmiðlar Tengdar fréttir RÚV ekki lengur með skjalið umdeilda í sínum fórum Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir að skjal, sem umfjöllun Kastljóss í mars 2012 var byggð á, sé ekki í vörslum Ríkisútvarpsins. 20. ágúst 2020 22:05 Segja fyrirtæki í eigu Samherja hafa greitt fyrir kvóta í gegn um lögmannsstofur Namibískt dótturfyrirtæki Samherja greiddi fyrir aflaheimildir með millifærslum inn á reikning tveggja lögmannsstofa. Þetta kemur fram í frétt The Namibian í dag. 19. ágúst 2020 19:35 „Íslensk útgerðafyrirtæki eru reiðubúin til að greiða meira fyrir auðlindina í Namibíu en hér“ Samherji greiddi hærri veiðigjöld í Namíbíu en hér á landi árið 2018 eftir að stjórnvöld þar hækkuðu veiðigjöldin úr einu prósenti í tíu prósent. Formaður Viðreisnar segir þetta sýna að útgerðir séu viljugar til að greiða veiðigjöld þrátt fyrir miklar hækkanir. Auðlindarákvæði í stjórnarskrá sé nauðsyn. 18. ágúst 2020 18:51 Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira
Ástæða þess að ekki var getið til um tilvist skjals, sem vísað var til í Kastljósþætti Ríkisútvarpsins sem var sýndur þann í mars 2012, í yfirlýsingu sem Verðlagsstofa skiptaverðs gaf út þann 12. ágúst er sú að skjalið hafði ekki fundist. Skjalið var geymt utan hefðbundsins skjalakerfis stofunnar, á aflögðu gagnadrifi sem núverandi starfsmenn hafa fæstir aðgang. Þetta kemur fram í nýrri yfirlýsingu sem Verðlagsstofu skiptaverðs sendi frá sér í dag. Skjalið umrædda, sem hefur verið eitt af aðalumræðuefnum í deilum Samherja og Ríkisútvarpsins undanfarnar vikur, fannst nýlega hjá Verðlagsstofu skiptaverðs og er um að ræða þriggja blaðsíðna ódagsett og óundirritað skjal með töflum og tölulegum upplýsingum um útflutning á óunnum karfa til Þýskalands árin 2008 og 2009 samkvæmt yfirlýsingu Verðlagsstofu. Fram kemur í skjalinu hvert meðalverð og magn í beinni sölu á karfa og á markaði innanlands þessi ár var ásamt yfirliti um útgefin meðalviðmiðunarverð á karfa hjá Verðlagsstofu eftir mánuðum árið 2008 og 2009. Í lok skjalsins dregur þáverandi starfsmaður Verðlagsstofu ályktun af þessum gögnum í nokkrum línum segir í yfirlýsingunni. Ályktun starfsmanns VSS í lok skjalsins Í ljós kemur að Samherji hf. er að greiða lægstu verðin en það fyrirtæki er eina fyrirtækið sem er að selja karfa í eigin vinnslu í Þýskalandi það er um að ræða beina sölu. Þau verð eru þó langt yfir þeim verðum sem fengust fyrir karfann í beinni sölu innanlands. Ef árin eru borin saman þá hafa þau verð sem Samherji hf. er að greiða hækkað verulega milli ára miðað við verð á uppboðsmarkaði í Þýskalandi. Úr skjali sem starfsmaður VSS tók saman Skjalið ber yfirskriftina „Greining á sölu á óunnum karfa sem fluttur var til Þýskalands á árunum 2008 og 2009“ og var það tekið saman af þáverandi starfsmanni Verðlagsstofu skiptaverðs og send úrskurðarnefnd í apríl 2010. Viðkomandi starfsmaður lét af störfum hjá Verðlagsstofu vorið 2010. Samherji birtir skjalið Samherji sendi einnig út yfirlýsingu vegna málsins fyrr í dag þar sem sagt er að engin efnisleg niðurstaða sé dregin fram í skjalinu og að ekkert í skjalinu styðji þær ásakanir sem sem settar voru fram á hendur Samherja í Kastljósi. Samherji birtir skjalið á vef sínum og segir ekkert í hinu nýfundna skjali staðfesta þær ásakanir sem voru fluttar í þætti Kastljóss. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.Vísir/Vilhelm „Þvert á móti kemur fram í skjalinu að aðeins lítill hluti umrædds útflutnings á karfa var veiddur af skipum Samherja. Þá er ekkert fjallað um stærð eða gæði karfans í vinnuskjalinu.“ Samherji hefur gert athugasemdir við að orðið skýrsla hafi verið notað í umræddum Kastljósþætti og sagt skýrsluna ekki til. Verðlagsstofa skiptaverðs sagði þann 12. ágúst að upplýsingar á Excel-formi hefðu verið teknar saman og nú að þriggja blaðsíðna minnisblað sem starfsmaður tók saman og dró ályktun af hafi verið sent á úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna í byrjun árs 2012. Tveir fyrrverandi fulltrúar sjómanna í nefndinni hafa sagst eiga sömu gögn. Ekki skipti máli hvort gögnin heiti skýrsla eða minnisblað. Það segi sína sögu.
Í ljós kemur að Samherji hf. er að greiða lægstu verðin en það fyrirtæki er eina fyrirtækið sem er að selja karfa í eigin vinnslu í Þýskalandi það er um að ræða beina sölu. Þau verð eru þó langt yfir þeim verðum sem fengust fyrir karfann í beinni sölu innanlands. Ef árin eru borin saman þá hafa þau verð sem Samherji hf. er að greiða hækkað verulega milli ára miðað við verð á uppboðsmarkaði í Þýskalandi. Úr skjali sem starfsmaður VSS tók saman
Samherji og Seðlabankinn Samherjaskjölin Ríkisútvarpið Fjölmiðlar Tengdar fréttir RÚV ekki lengur með skjalið umdeilda í sínum fórum Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir að skjal, sem umfjöllun Kastljóss í mars 2012 var byggð á, sé ekki í vörslum Ríkisútvarpsins. 20. ágúst 2020 22:05 Segja fyrirtæki í eigu Samherja hafa greitt fyrir kvóta í gegn um lögmannsstofur Namibískt dótturfyrirtæki Samherja greiddi fyrir aflaheimildir með millifærslum inn á reikning tveggja lögmannsstofa. Þetta kemur fram í frétt The Namibian í dag. 19. ágúst 2020 19:35 „Íslensk útgerðafyrirtæki eru reiðubúin til að greiða meira fyrir auðlindina í Namibíu en hér“ Samherji greiddi hærri veiðigjöld í Namíbíu en hér á landi árið 2018 eftir að stjórnvöld þar hækkuðu veiðigjöldin úr einu prósenti í tíu prósent. Formaður Viðreisnar segir þetta sýna að útgerðir séu viljugar til að greiða veiðigjöld þrátt fyrir miklar hækkanir. Auðlindarákvæði í stjórnarskrá sé nauðsyn. 18. ágúst 2020 18:51 Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira
RÚV ekki lengur með skjalið umdeilda í sínum fórum Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir að skjal, sem umfjöllun Kastljóss í mars 2012 var byggð á, sé ekki í vörslum Ríkisútvarpsins. 20. ágúst 2020 22:05
Segja fyrirtæki í eigu Samherja hafa greitt fyrir kvóta í gegn um lögmannsstofur Namibískt dótturfyrirtæki Samherja greiddi fyrir aflaheimildir með millifærslum inn á reikning tveggja lögmannsstofa. Þetta kemur fram í frétt The Namibian í dag. 19. ágúst 2020 19:35
„Íslensk útgerðafyrirtæki eru reiðubúin til að greiða meira fyrir auðlindina í Namibíu en hér“ Samherji greiddi hærri veiðigjöld í Namíbíu en hér á landi árið 2018 eftir að stjórnvöld þar hækkuðu veiðigjöldin úr einu prósenti í tíu prósent. Formaður Viðreisnar segir þetta sýna að útgerðir séu viljugar til að greiða veiðigjöld þrátt fyrir miklar hækkanir. Auðlindarákvæði í stjórnarskrá sé nauðsyn. 18. ágúst 2020 18:51