Ók niður göngugötu á Laugavegi undir áhrifum fíkniefna Sylvía Hall skrifar 13. september 2020 17:29 Lögreglan veitti ökumanninum eftirför. Vísir/Vilhelm
Betur fór en á horfðist þegar ökumaður ók undir áhrifum fíkniefna í miðborginni í dag. Ökumaðurinn hafði stolið bifreiðinni og þurfti lögregla að veita ökumanninum eftirför um miðbæ Reykjavíkur. Lögregla hafði komið auga á bifreiðina eftir að tilkynning barst en ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu. Ók hann meðal annars eftir göngugötu á Laugaveginum, en samkvæmt tilkynningu lögreglu mátti litlu muna að gangandi vegfarendur yrðu fyrir bifreiðinni. Viðkomandi á von á kæru fyrir hin ýmsu brot, en hann var vistaður í fangaklefa og bíður skýrslutöku þegar ástand hans lagast. Þá var ökumaður stöðvaður á Seltjarnarnesi en sá reyndist ölvaður og var sviptur ökuréttindum. Annar var handtekinn í Garðabæ eftir að hafa ekið bifreið sinni út af veginum og reyndist hann vera í annarlegu ástandi. Lítilli rútu var stolið í Háaleitis- og Bústaðahverfi í dag. Hún fannst mannlaus rúmlega tveimur tímum síðar, en málið er til rannsóknar. Í sama hverfi var brotist inn í hverfi og verðmætum eiganda hennar stolið og stuttu síðar brotist inn í íbúðarhús og verkfærum stolið. Tveir voru svo handteknir í Kópavogi þar sem þeir reyndust vera með mikið magn af þýfi og fíkniefnum í fórum sínum. Mennirnir voru vistaðir í fangaklefum.
Lögreglumál Reykjavík Göngugötur Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fleiri fréttir Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Sjá meira