Anníe Mist Þórisdóttir ætlar að halda áfram að vera hreinskilin við fylgjendum sínum og mun líka deila erfiðu stundunum á leið sinni til baka eftir barnsburð.
Anníe Mist Þórisdóttir hefur verið brautryðjandi allan sinn CrossFit feril og móðir CrossFit íþróttarinnar á Íslandi er enn að feta nýja slóð.
Anníe Mist varð móðir fyrir sjö vikum og hefur allan tímann leyft fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum að fylgjast með. Hún gerði það alla meðgönguna og hefur haldið því áfram eftir að Freyja Mist kom í heiminn 10. ágúst síðastliðinn.
Það er athyglisvert að fá að fylgjast með því hvernig afrekskona eins og Anníe Mist kemur til baka í jafn krefjandi íþrótt og CrossFit er.
„Ég hef verið mjög hreinskilin varðandi allt á samfélagamiðlunum mínum og þótt að hlutirnir gangi ekki eins vel og ég ætlaði mér þá ætla ég samt ekki að hætta því. Mér finnst það mikilvægt að fólk sjái veruleikann líka,“ hóf Anníe Mist nýjasta pistil sinn á Instagram sem má sjá hér fyrir neðan.
„Væntingar og veruleiki eru oft fjarri hvoru öðru. Ég hafði einhvern veginn ímyndað mér að eftir nokkrar vikur af léttum æfingum þá gæti ég byrjað aftur af fullum krafti. Sko, það er ekki alveg það sem gerðist hjá mér,“ skrifaði Anníe Mist.
„Ég eignaðist barnið mitt fyrir sjö vikum og þegar ég horfi niður þá sé enn þá bumbu. Ég er ekki að segja að ég sé ekki sátt með það hvernig ég lít út. Ég hef aftur á móti verið í íþróttum alla mína ævi og ég hef aldrei séð líkamann minn eða liðið svona áður. Þetta er allt mjög öðruvísi fyrir mig,“ skrifaði Anníe Mist.
„Þú ert með mjög skrýtna tilfinningu í maganum eftir að þú fæðir barn. Það er enn bumba en hún er mjög mjúk og tóm á meðan líffærin eru að koma sér aftur á réttan stað,“ skrifaði Anníe Mist.
„Þó að þetta sé ekki að ganga jafn hratt og ég vildi þá veit ég að ég kemst þangað. Líkaminn minn hefur upplifað margt öll þessi ári og ég verð bara að vera þolinmóð og gefa skrokknum tíma til að ná sér að fullu,“ skrifaði Anníe Mist.
„Ég átta mig á því að líkaminn munn líklega aldrei líta út eins og hann gerði áður. Ég er alveg sátt við það. Ástríðan mín er að vera besta útgáfan af sjálfri mér, bæði fyrir mig og fólkið sem mér þykir vænt um. Það hefur ekkert breyst. Ég mun því gera allt sem er í mínu valdi til að móta líkamann og verða sterk á ný. Þau markmið munu hjálpa mér að verða besta mögulega ég,“ skrifaði Anníe Mist og endaði pistilinn sinn á hjarta.