Norðlenska í samstarfi við sprotafyrirtækið Sprettu Norðlenska 28. október 2020 11:45 Norðlenska og Spretta hafa framleitt spennandi matvörur sem fást nú í verslunum Krónunnar.
Norðlenska hefur sett nýjar vörur á markað í samstarfi við íslenska sprotafyrirtækið Sprettu. Vörurnar eru þær fyrstu af mörgum sem þróaðar hafa verið en samstarf fyrirtækjanna hófst í sumar. Ofurfæða fyrir kröfuharða neytendur „Við hjá Sprettu erum afskaplega ánægð með samstarfið því Norðlenska hefur gefið okkur einstakt tækifæri til að þróa með þeim matvöru og koma þannig til móts við kröfur neytenda um hærra hlutfall grænmetis í daglegri neyslu,“ segir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir en hún stofnaði Sprettu fyrir fimm árum ásamt eiginmanni sínum Stefáni Karli Stefánssyni heitnum og Soffíu Steingrímsdóttur. „Sprettur eru hollari og ríkari af bætiefnum en annað grænmeti og algjör ofurfæða." „Sprettur eru hollari og ríkari af bætiefnum en annað grænmeti og algjör ofurfæða. Með því að nota engin eiturefni, lágmarka orkuþörf og losa engan ólífrænan úrgang er framleiðslan eins ábyrg og völ er á og neytandinn beinlínis þátttakandi í bættu neyslumynstri, styttri flutningsleiðum og hollari matvælaneyslu,“ bætir hún við. Styðja við frumkvöðla „Tilgangur samstarfsins er að bjóða neytendum upp á ferskar, bragðgóðar og heilnæmar vörur en ekki síður að styðja við íslenska frumkvöðla og kynna þá miklu grósku og fjölbreytni sem er í íslenskri matvælaframleiðslu,“ segir Drífa Árnadóttir, markaðsstjóri Norðlenska. Hún segir Sprettu rækta gæða kryddjurtir sem bæði matreiðslumenn og matvandir sækja í. „Afurðir Sprettu er verðmæt hágæðavara sem er eftirsótt af meistarakokkum fyrir bragðgæði og fegurð og er líka í uppáhaldi hjá jafnvel matvöndustu börnum.“ Í kjötbollurnar eru notaðar nýklipptar skprettur Ferskleiki í fyrirrúmi Fyrstu vörurnar eru komnar í verslanir Krónunnar, lambabollur með kóríandersprettum og nautabollur með basilsprettum. „Í kjötbollurnar okkar notum við aðeins nýklipptar sprettur, sem eru smávaxnar og bragðmiklar kryddplöntur sem eru einstaklega ríkar af næringarefnum og ferskt kjöt,“ segir Drífa. Mið-Austurlönd í íslenskum lambabollum „Lambabollurnar eru eins hrein fæða og hugsast getur, íslenskt lambakjöt og ferskar kóríandersprettur sem gefa bollunum Mið-Austurlanda-keim en þar leikur kóríander lykilhlutverk. Þær eru tilvaldar einar og sér með góðri, kaldri hvítlaukssósu, mangó-chutney og hrísgrjónum. Einnig er upplagt að skella þeim í pítuna með grænmeti og sósu að eigin vali. Lambabollurnar eru frábærar helmingaðar í heimagerðar "meat´n cheese" pizzur og svo bara bornar fram fulleldaðar á veisluborð með myntusósu eða "chili mayo".“ Keimur af Mið-Austurlöndum fylgir kóríandersprettum Miðjarðarhafsstemming í nautabollum „Nautabollurnar eru úr íslensku hágæða nautakjöti og ferskum sprettum. Hér er það miðjarðarhafskryddið basilika sem ræður för og eru þær því upplagðar í klassíska pastarétti og í tómatlagaðar sósur. Nautabollurnar eru líka bragðgóðar kaldar og má því auðveldlega lauma þeim í nestisboxið með smávegis af pasta og tómatsósu fyrir yngstu kynslóðina. Nautabollurnar eru brjálæðislega góðar í langlokur með grænmeti og osti og hitaðar á grilli eða í ofni,“ segir Drífa Krónan er í samstarfi við Norðlenska og Sprettu og verða vörurnar eingöngu seldar í verslunum Krónunnar.
Matur Heilsa Nýsköpun Lífið Mest lesið Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Viðskipti innlent Segðu Já í vinnunni og það strax! Atvinnulíf Fleiri fréttir Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Alvöru þægindi eftir átján holur Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Sjá meira
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent