Sigur og sjálfsmark í fyrsta leik Daníels Leó Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 31. október 2020 17:15 Daníel Leó byrjaði sinn fyrsta leik hjá Blackpool í dag. Vísir/Vilhelm
Daníel Leó Grétarsson lék sinn fyrsta leik fyrir Blackpool í ensku C-deildinni í dag. Varð hann fyrir því óláni að skora sjálfsmark í 2-1 sigri liðsins. Þá kom Jón Daði Böðvarsson inn af varamannabekk Milwall í 0-1 tapi. Blackpool heimsótti Burton Albion í svokölluðum sex stiga leik í ensku C-deildinni í dag. Lið Blackpool var aðeins með einu stigi meira en Burton fyrir leikinn en bæði lið eru í neðri hluta deildarinnar. Daníel Leó lék sinn fyrsta leik fyrir Blackpool frá því hann gekk í raðir félagsins frá norska liðinu Álasund þann 5. október. Lék hann í miðverði. Jerry Yates kom gestunum yfir á 21. mínútu og þannig var staðan allt fram á 63. mínútu leiksins. Þá hrökk skot heimamanna af Daníel og í netið. Markið skráð sem sjálfsmark og staðan 1-1. Yates var aftur á ferðinni þegar fimmtán mínútur voru til leiksloka og reyndist það sigurmark leiksins. Staðan 2-1 Blackpool í vil sem er nú komið upp í 16. sæti deildarinnar með tíu stig eftir tíu umferðir. Peterborough United trónir á toppi deildarinnar með 22 stig. Jón Daði lék síðustu 11 mínúturnar í liði Millwall er liðið tapað 0-3 á heimavelli fyrir Huddersfield Town. Huddersfield skoraði tvívegis undir lok leiks er Millwall hafði hent öllum fram til að reyna jafna. Millwall er í 7. sæti með 15 stig eftir níu leiki.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn „Þú ert farinn að verða þybbinn“ Fótbolti LIV heldur sínu striki í miðjum stormi Golf „Ég get ekki breytt þessu“ Íslenski boltinn „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Enski boltinn Hálfíslensk knattspyrnukona valin í norska landsliðið Sport Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti Sjáðu alla dramatíkina hjá Bayern og Real Fótbolti Völdu kærustu hennar líka númer eitt Körfubolti „Við erum mjög vonsviknir og mjög reiðir“ Fótbolti Fleiri fréttir Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar Sjá meira