Håland og Lewandowski skoruðu báðir en Bayern hirti stigin þrjú 7. nóvember 2020 19:31 Bæjarar fagna marki en Dortmund menn svekktir. M. Donato/FC Bayern/Getty Images Bayern München vann Dortmund 3-2 í stórleik dagsins í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Markavélarnir Robert Lewandowski og Erling Braut Håland voru báðir á skotskónum. Robert Lewandowski virtist vera koma Bayern yfir á 27. mínútu en markið var dæmt af eftir skoðun VARsjánnar. Það voru svo heimamenn í Dortmund sem komust yfir á 45. mínútu með marki Marco Reus. Allt leit út fyrir að þeir myndu leiða í hálfleik en David Alaba jafnaði metin fyrir Bayern á fjórðu mínútu uppbótartíma í fyrri hálfleik og staðan jöfn í leikhléi. Markavélin Lewandowski kom Bayern yfir á 48 mínútu og varamaðurinn Leroy Sane skoraði með góðu skoti á 80. mínútu og kom Bayern í 3-1. Erling Braut Håland minnkaði hins vegar muninn í 3-2 á 83. mínútu. Bæjarar virtust vera gera út um leikinn á 93. mínútu er Robert Lewandowski skoraði en aftur var mark dæmt af honum eftir VARsjána. Lokatölur þó 3-2. A late disallowed goal for Bayern Munich but they've done enough to seal three points in #DerKlassiker! https://t.co/N1A9ODvR38#bbceurofooty pic.twitter.com/rER9u8LxiA— BBC Sport (@BBCSport) November 7, 2020 Bayern er með átján stig á toppi deildarinnar en Dortmund er í þriðja sætinu með fimmtán stig. Leipzig er í öðru sætinu með sextán stig. Þýski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti