Aftur fékk Börsungurinn að heyra það: „Þessar móttökur voru hræðilegar!“ Anton Ingi Leifsson skrifar 19. nóvember 2020 22:00 Braithwaite í leiknum í gær. Með smá heppni hefði hann getað skorað að minnsta kosti eitt mark. ean Mouhtaropoulos/Getty Images
Það fylgir Martin Braithwaite mikil pressa að spila í Barcelona og sú pressa fer með honum í danska landsliðið þar sem danski landinn býst við miklu af honum. Braithwaite fékk ekki háa einkunn fyrir frammistöðu sína í 2-1 nauma sigrinum gegn Íslandi á sunnudagskvöldið og ekki var einkunnin hærri eftir 4-2 tapið gegn Belgíu í gærkvöldi. Framherjinn fékk fjóra í einkunn eins og nokkrir aðrir leikmenn danska landsliðsins, til að mynda Kasper Schmeichel og Yussuf Poulsen. „Enginn getur fjarlægt sjálfstraustið rosalega og það sköpuðust færi í kringum hann en móttakan var á utandeildarstigi. Þessar móttökur voru hræðilegar!“ skrifaði BT í umfjölluninni um Braithwaite. Það var þó enginn sem fékk lægri einkunn en vinstri bakvörðurinn Joakim Mæhle. Hann hafði spilað nokkra góða leiki í röð áður en kom að toppslagnum við Belga í gær þar sem hann réði ekki við eitt né neitt. Christian Eriksen var, aftur, besti maður Dana að mati BT. „Það er ótrúlegt að þjálfari Inter Antonio Conte fái Eriksen ekki til að virka hjá sínu liði,“ sagði í umfjölluninni um Eriksen. Allar umsagnirnar má lesa hér.
Þjóðadeild UEFA Mest lesið 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Enski boltinn Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Íslenski boltinn Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Íslenski boltinn Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Fótbolti Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Fótbolti Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai Enski boltinn Haukar og Selfoss leika til úrslita Íslenski boltinn Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Fótbolti Real kastaði næstum frá sér sigrinum Fótbolti Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fótbolti Fleiri fréttir Hringdi í Mourinho eftir að hafa hafnað honum Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Real kastaði næstum frá sér sigrinum Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai 16 ára í stuði er Arsenal og Liverpool fóru áfram Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Haukar og Selfoss leika til úrslita Þrír Íslendingar spiluðu og fóru áfram Áfram í bikarnum eftir Íslendingaslag Coutinho og Neymar uppfylla gamlan draum Fyrrum leikmaður Tottenham til Ajax Vonarstjarna Man. Utd vill burt frá félaginu Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ Raheem Sterling játar sök „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Fékk símtal frá Þorsteini í þetta sinn en er óviss um landsliðið Sjáðu veislu Leeds og markið sem gerði framherjann brjálaðan „Hann er betri útgáfa af Gerrard“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu Fúlir foreldrar fá svarta spjaldið „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Richarlison sorgmæddur: „Af hverju?“ Milner aftur til Liverpool Coutinho og Neymar sameinaðir á ný „Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Leedsarar léku sér að Newcastle Magnaður Malen og Inter kom til baka VAR dómararnir í bann eftir mistök helgarinnar Sjá meira