Tottenham og LASK gerðu 3-3 jafntefli í J-riðli Evrópudeildarinnar í knattspyrnu. Með jaftnteflinu er Tottenham komið áfram í næstu umferð.
Tottenham þurfti einungis eitt stig til þess að tryggja sig áfram í næstu umferð en það voru heimamenn í LASK sem komust yfir á 42. mínútu. Gareth Bale jafnaði þó úr vítaspyrnu fyrir hlé.
Heung-Min Son kom svo Tottenham í 2-1 á 56. Mínútu en Johannes Eggstein jafnaði metin fyrir LASK á 84. mínútu. Varamaðurinn Dele Alli virtist þó vera skora sigurmarkið úr vítaspyrnu á 87. mínútu en heimamenn jöfnuðu í uppbótartíma og lokatölur 3-3.
FT: LASK 3-3 Tottenham
— BBC Sport (@BBCSport) December 3, 2020
Job done for Spurs
They go through to the last 32 after a dramatic 90 minutes.
#UEL LIVE: https://t.co/a9R4LxHfIY#ASKTHFC #bbcfootball pic.twitter.com/L9VGEz1huR
Antwerp og Tottenham eru því bæði komin áfram í 32-liða úrslitin.
Hörður Björgvin Magnússon lék allan leikinn fyrir CSKA Moskvu sem tapaði 0-1 fyrir Wolfsberger á heimavelli í K-riðlinum. Arnór Sigurðsson spilaði síðasta stundarfjórðunginn en með tapinu er ljóst að CSKA kemst ekki áfram í næstu umferð.
AC Milan er einnig komið áfram eftir 4-2 sigur á Celtic. Skotarnir komust 0-2 yfir á San Siro en tvö mörk í fyrri og tvö í þeim síðari skaut AC Milan áfram í 32-liða úrslitin. Eitt markanna skoraði m.a. Norðmaðurinn Jens Petter Hauge sem hefur slegið í gegn eftir komuna frá Bodo/Glimt.
- AC Milan make their 400th match in Europe a special one. For the first time in their illustrious history, the rossoneri win a Eueopean match in which they trailed by two goals. #milcel #EuropaLeague
— Gracenote Live (@GracenoteLive) December 3, 2020
Leicester tapaði 1-0 fyrir Zorya á útivelli en enska úrvalsdeildarliðið var fyrir leikinn í kvöld komið áfram.
Öll úrslit kvöldsins:
G-riðill:
AEK - Braga 2-4
Zorya - Leicester 1-0
H-riðill:
AC Milan - Celtic 4-2
Lille - Sparta Prague 2-1
I-riðill:
Qarabag - Maccabi Tel Aviv 1-1
Sivasspor - Villareal 0-1
J-riðill:
LASK - Tottenham 3-3
Antwerp - Ludogorets 3-1
K-riðill:
CSKA - Wolfsberger 0-1
Feyenoord - Dinamo Zagreb 0-2
L-riðill:
Crvena Zvezda - Hoffenheim 0-0
Gent - Slovan Liberec 1-2