Í losti eftir að aðgerðirnar voru kynntar í dag Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 7. desember 2020 20:21 Guðrún Þórey Gunnarsdóttir opnaði kaffihúsið Gudrun's Goodies í miðborg Kaupmannahafnar í haust þar sem áhersla er lögð á að bjóða upp á á íslenskt bakkelsi og annað góðgæti. Vísir/Elín Íslensk kona sem rekur kaffihús í Kaupmannahöfn segist vera í losti eftir fréttir af hertum aðgerðum vegna kórónuveirunnar sem kynntar voru í dag. Hún kveðst þó vona að geta haldið rekstrinum áfram gangandi með því að bjóða upp á kaffi og kræsingar til að taka með.
Öllum menningarstofnunum, börum og veitingastöðum í stórum hluta Danmerkur verður gert að hafa lokað til að minnsta kosti 3. janúar. Þá verða elstu börn grunnskóla send heim og fá kennslu í gegnum netið. Lífið hefur að mörgu leyti gengið sinn vanagang í Kaupmannahöfn undanfarnar vikur og mánuði. Barir, veitingastaðir, menningarstofnanir og líkamsræktarstöðvar hafa verið opnar og það hefur gjarnan verið örtröð í miðborginni eftir að jólaverslunin fór í gang. Það kemur að öllum líkindum til með að breytast frá og með miðvikudegi þegar verulega hertar aðgerðir sem tilkynnt var um í dag taka gildi, í alls þrjátíu og átta sveitarfélögum um landið. „Veitingastaðir, kaffihús og aðrir sem bjóða veitingar skulu hafa lokað. Það má þó áfram selja til að taka með. Íþróttastarf innandyra og annað félagsstarf skal ekki fara fram,“ sagði Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, þegar hertar aðgerðir voru kynntar á blaðamannafundi í hádeginu í dag. „Atvinnuíþróttir eru undanskildar. Menningarstofnanir, leikhús, tónleikastaðir, kvikmyndahús og bókasöfn þar sem starfsemi er innandyra skal lokað,“ sagði Mette. Þá mun allt skólahald, frá fimmta bekk grunnskóla og upp úr fara fram rafrænt. Enn í losti eftir fréttir dagsins Guðrún Þórey Gunnarsdóttir opnaði kaffihúsið Gudrun's Goodies í miðborg Kaupmannahafnar í haust, vongóð um að ekki yrði aftur gripið til svo hertra aðgerða. „Ég opnaði 16. september síðastliðinn og þetta hefur gengið. Íslendingar hafa tekið mér alveg ofboðslega vel og mikið að gera til dæmis núna síðustu daga í take-away fyrir jólin. Ég bíð sem sagt upp á box af svona góðgæti sem fólk er vant að borða yfir jólin og það hefur verið rosalega vinsælt,“ segir Guðrún í samtali við fréttastofu. Hvernig varð þér við að heyra fréttirnar í dag af þessum hertu aðgerðum sem eiga að taka gildi á miðvikudaginn? „Ég veit varla, ég er enn í losti yfir því hvernig þetta fer með mig. Því ég náttúrlega var ekki hérna í vor þegar sambærilegar aðgerðir voru þannig að ég bara er enn að melta þetta og velta því fyrir mér hvernig og hvaða áhrif þetta muni hafa á mig,“ segir Guðrún. Óttast þú að þetta muni jafnvel gera út af við reksturinn? „Nei, það held ég ekki. Ég hef trú á því að þetta take-away haldi áfram og jafnvel verði bara meira og af því ég er hérna bara sjálf þá er í raun og veru svo lítil yfirbygging að ég held að þetta muni ganga hjá mér,“ segir Guðrún sem jafnan stendur vaktina sjálf á kaffihúsinu. „Ég verð hérna alveg og stend vaktina og hef eins opið og ég má, alveg bara alla daga nema kannski rétt yfir blá jólin og áramótin,“ segir Guðrún. „Þetta verða bara yndisleg jól,“ segir Guðrún sem kveðst bjartsýn þrátt fyrir allt. „Við Íslendingar erum vanir að komast í gegnum allan fjandann og ég mun komast í gegnum þetta líka.“
Íslendingar erlendis Danmörk Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Of snemmt að draga fram heykvíslar Viðskipti innlent Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Neytendur Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Viðskipti innlent Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Viðskipti innlent Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: Yngri stjórnendur hógværir og gamli leiðtogastíllinn að víkja Atvinnulíf Fleiri fréttir Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira