Sjö greindust innanlands í gær Atli Ísleifsson skrifar 29. desember 2020 10:48 Rúmlega 5.700 manns hafa greinst með Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm Sjö greindust með kórónuveiruna í gær. Einungis tveir af þeim sjö sem greindust voru í sóttkví.
Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. 142 manns eru nú í einangrun, samanborið við 143 í gær. Þá eru 246 nú sóttkví, samanborið við 239 í gær. Alls eru 23 nú á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og enginn á gjörgæslu. Í gær voru 25 á sjúkrahúsi og þar af einn á gjörgæslu. Sex greindust smitaðir á landamærum í gær – einn með virkt smit og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilvikum fimm. Af þeim sjö sem greindust innanlands í gær greindust sex eftir svokallaða einkennasýnatöku og einn í sóttkvíar- og handahófsskimun. Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 28,9, en var 27,8 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 16,9, en var 17,5 í gær. Alls hafa 5.736 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa nú 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins, en fyrr i dag var greint frá því að einn hafi látist af völdum Covid-19 á Landspítalanum í gær. Sá var á áttræðisaldri. Alls voru tekin 932 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 581 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru tekin 28 sýni í svokallaðri sóttkvíar- og handahófsskimun. Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira