Vætusamt um landið sunnan- og vestanvert Atli Ísleifsson skrifar 18. apríl 2020 07:55 Spákortið fyrir klukkan 13 í dag, eins og það leit út um klukkan átta í morgun. Veðurstofan
Útlit er fyrir suðlægri átt, víða á bilinu 10 til 18 metrar á sekúndu, og að það verði vætusamt um landið sunnan- og vestanvert, en lengst af bjart og hlýtt á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti verður á bilinu 6 til 13 stig, hlýjast austanlands. Í hugleiðingum veðurfræðings kemur fram að í kvöld og í nótt kólni og séu líkur á að úrkoma norðvestantil á landinu gæti farið yfir í slyddu á láglendi og snjókomu til fjalla. „Á morgun nær svo suðaustanáttin styrk aftur og þá hlýnar svo að ef snjóar á norðvestanverðu landinu um nóttina tekur það fljótt upp, en áfram mun rigna sunnan- og vestantil. Þurrt og hlýtt fyrir norðan og austan. Svo er að sjá að mánudagurinn verði á svipuðum nótum.“ Yfirlit: Vegir eru víðast hvar auðir en sumstaðar er þokuloft um vestanvert landið, einkum á fjallvegum. Upplýsingasíminn 1777 er opinn kl. 06:30-22:00. #færðin— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) April 18, 2020 Veðurhorfur á landinu næstu daga Á sunnudag: Sunnan 8-13 m/s og rigning á sunnanverðu landinu, en þurrt norðaustantil. Hiti 5 til 10 stig. Hægari og slydda á Norðvesturlandi, Vestfjörðum og við Breiðafjörð með hita á bilinu 0 til 3 stig í fyrstu en síðan heldur hlýrra og rigning. Á mánudag: Suðlæg átt, 8-13 m/s og dálítil væta, en hægari vindur og þurrt norðaustanlands. Hiti víða 5 til 10 stig. Á þriðjudag: Sunnan 5-10, en hægari vestantil. Skýjað og væta, en áfram þurrt um landið NA-vert. Hiti 2 til 12 stig yfir daginn, hlýjast á NA-landi. Á miðvikudag: Áframhaldandi suðlæg átt. Skýjað, en yfirleitt þurrt vestantil, en annars bjart með köflum. Hiti 3 til 8 stig yfir daginn. Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti): Líkur á suðlægri átt með vætu um landið vestanvert, en yfirleitt þurrt annars. Hiti breytist lítið. Á föstudag: Útlit fyrir austlæga eða breytilega átt með vætu í flestum landshlutum. Áfram fremur milt.
Veður Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira