Þrír nýir hluthafar hjá LEX lögmannsstofu Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 30. mars 2020 18:26 Lára Herborg Ólafsdóttir (t.v.), Fanney Frímannsdóttir (f.m.) og Birgir Már Björnsson (t.h.) eru nýir hluthafar í lögmannsstofunni LEX. samsett
Þrír nýir hluthafar hafa gengið til liðs við hluthafahóp LEX en það eru þau Birgir Már Björnsson, Fanney Frímannsdóttir og Lára Herborg Ólafsdóttir. Þetta var samþykkt á aðalfundi LEX síðastliðinn föstudag og kemur fram í tilkynningu á heimasíðu lögmannsstofunnar. Birgir Már er lögmaður og hefur hann leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi, Landsrétti og Hæstarétti. Hann hefur starfað á LEX frá 2011 og þar áður starfaði hann í tvö ár hjá lögmannsstofnunum Acta og Megin. Í tilkynningunni kemur fram að Birgir hafi í störfum sínum hjá LEX lagt megináherslu á úrræði tengd greiðsluerfiðleikum auk eignaréttar, félagaréttar og höfundaréttar. Fanney Frímannsdóttir hóf störf hjá LEX í nóvember 2011 en hafði þar áður starfað í tvö ár hjá Kaupþingi og hefur hún leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Fanney hefur lagt megináherslu á félaga- og fjármálarétt í störfum sínum hjá lögmannsstofunni en hefur sérstaklega sinnt verkefnum sem felast í ráðgjöf fyrir stærri fyrirtæki, banka og fjármálafyrirtækja. Lára Herborg hóf störf hjá LEX í febrúar 2019 og hefur hún málflutningsrétt fyrir héraðsdómstólum. Vorið 2018 lauk hún LL.M. gráðu í tæknirétti frá háskólanum UC Berkley í Bandaríkjunum og starfaði um skeið hjá alþjóðlegri lögmannsstofu í Lúxemborg þar sem hún sinnti tækni- og hugverkaréttarmálum, þar með talið á sviði fjártækni og persónuverndar.
Vistaskipti Mest lesið Sagði eldri menn vísvitandi borna röngum sökum en situr uppi með Svarta-Pétur Neytendur Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent Að sofna yfir sjónvarpinu á kvöldin telst ekki með Atvinnulíf Reka forstjóra danska lyfjarisans sem malar gull á Ozempic Viðskipti erlent Himinlifandi og ekki hugsi yfir litlum hlut fagfjárfesta Viðskipti innlent Tilefni fyrir ríkið að íhuga sölu Landsbankans Viðskipti innlent Gömlu höfuðstöðvar Icelandair verða hjúkrunarheimili Viðskipti innlent Síðasti dropinn á sögulegri stöð Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Varar við framtíðarreikningum í nafni barnsins Neytendur Fleiri fréttir Tilefni fyrir ríkið að íhuga sölu Landsbankans Strætó hættir að taka á móti reiðufé í vögnum 1. júní Himinlifandi og ekki hugsi yfir litlum hlut fagfjárfesta Heinemann svarar Sameyki: „Þetta er rangt“ Gömlu höfuðstöðvar Icelandair verða hjúkrunarheimili Ríflega þrjátíu þúsund einstaklingar kaupa hlut ríkisins „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Heildarvirði tæpur 91 milljarður og líkur á að nær allir hlutir fari til almennings Líklega stærsta eignasala ríkissjóðs frá upphafi Selja allan eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka Sjóvá tapar hálfum milljarði Málaferli vegna innkaupa ÁTVR halda enn áfram Jón Ólafur nýr formaður SA Hefja flug til Edinborgar og Malaga Árni hættir sem forstjóri Húsasmiðjunnar Landsbankinn við Austurstræti falur Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Bein útsending: Lokadagur Nýsköpunarviku Bjarni nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Spá óbreyttum stýrivöxtum Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Sjá meira
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent