Innlent

Segir að í þessu árferði ætti að rýmka heimildir til strandveiða

Kristján Már Unnarsson skrifar
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátasjómanna.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátasjómanna. Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.

Rýmri heimildir til strandveiða ættu að vera hluti af viðspyrnu stjórnvalda gegn erfiðu atvinnuástandi þetta árið, að mati talsmanns smábátasjómanna. Bræla á fiskimiðunum á þessum fyrsta veiðidegi kom þó í veg fyrir að strandveiðarnar hæfust af krafti. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2.

Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátasjómanna, hafði raunar hvergi heyrt af því að menn hefðu róið í dag. Engu að síður telst þetta stór dagur meðal smábátasjómanna.

„Jú, þetta er mikill dagur; fyrsti í strandveiðum. Ég hefði náttúrlega vonað að það hefði verið logn og blíða um land allt þannig að menn hefðu getað flykkst á sjó,“ segir Örn.

Frá Arnarstapa á Snæfellsnesi.Stöð 2/Skjáskot.

Fiskistofa er samt búin að úthluta þriðjungi fleiri leyfum til strandveiða í ár en í fyrra og Örn spáir því að sjöhundruð bátar stundi veiðarnar í sumar. Hann segist skynja það að margir vilji á sjóinn í erfiðu atvinnuástandi.

„Já, það hef ég orðið var við. Það eru náttúrlega tugir þúsunda atvinnulausir hér í landinu í dag. Og innan þeirra raða eru sjómenn sem hefðu viljað fara út og veiða.

Og það á að sjálfsögðu í svona ári eins og núna, þá á að rýmka til og heimila þessar veiðar í mun meira mæli heldur en hefur verið undanfarin ár. Og við erum kannski bara að tala um þetta eina ár,“ segir Örn.

En svo mikið er víst. Litlu sjávarþorpin lifna við.

„Þau vakna alveg af vetrardvalanum þegar strandveiðarnar byrja og allt mannlífið verður hressara og skemmtilegra þegar spriklandi þorskinum er landað úr strandveiðibátunum. Þetta er það sem fólkið sækist eftir.

Það er verið að hvetja okkur Íslendinga til þess að ferðast um landið. Þá er það nú höfnin í þessum litlu sjávarplássum sem hefur mest aðdráttaraflið,“ segir talsmaður smábátasjómanna.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Ekki spennandi skakveður á fyrsta degi strandveiðanna

Óvenju fáir smábátasjómenn hafa haldið til veiða í morgun á fyrsta degi strandveiðanna. Gul stormviðvörun er í gildi með öllu norðanverðu landinu, allt frá Vestfjörðum og austur að Langanesi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×