Sjáðu þegar Ronaldo sló met Pelé Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. janúar 2021 13:30 Cristiano Ronaldo kom með beinum hætti að þremur mörkum í fyrsta leik Juventus á árinu 2021. getty/Alberto Gandolfo Cristiano Ronaldo byrjaði árið 2021 af krafti en Portúgalinn skoraði tvö mörk og lagði upp eitt í 4-1 sigri Juventus á Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Með mörkunum tveimur komst Ronaldo upp fyrir Pelé þegar mörk með félagsliði og landsliði eru tekin saman. Ronaldo hefur nú skorað 758 mörk á ferlinum, einu meira en Pelé gerði á sínum tíma. Ronaldo kom Juventus yfir með föstu skoti í fjærhornið á 31. mínútu. Staðan var 1-0 í hálfleik, Juventus í vil. Í upphafi seinni hálfleiks gaf Ronaldo stungusendingu á Federico Chiesa sem kom Juventus í 2-0. Á 70. mínútu skoraði Ronaldo svo sitt annað mark eftir sendingu frá Rodrigo Bentancur. Marvin Zeegelaar minnkaði muninn fyrir Udinese á 90. mínútu en þremur mínútum síðar skoraði Paolo Dybala fjórða mark ítölsku meistaranna. Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Juventus 4-1 Udinese Juventus er í 5. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með 27 stig, tíu stigum á eftir toppliði AC Milan sem er einmitt næsti andstæðingur Juventus. Liðin mætast á San Siro á miðvikudaginn. Ronaldo er markahæstur í ítölsku úrvalsdeildinni með fjórtán mörk í aðeins ellefu leikjum.
Með mörkunum tveimur komst Ronaldo upp fyrir Pelé þegar mörk með félagsliði og landsliði eru tekin saman. Ronaldo hefur nú skorað 758 mörk á ferlinum, einu meira en Pelé gerði á sínum tíma. Ronaldo kom Juventus yfir með föstu skoti í fjærhornið á 31. mínútu. Staðan var 1-0 í hálfleik, Juventus í vil. Í upphafi seinni hálfleiks gaf Ronaldo stungusendingu á Federico Chiesa sem kom Juventus í 2-0. Á 70. mínútu skoraði Ronaldo svo sitt annað mark eftir sendingu frá Rodrigo Bentancur. Marvin Zeegelaar minnkaði muninn fyrir Udinese á 90. mínútu en þremur mínútum síðar skoraði Paolo Dybala fjórða mark ítölsku meistaranna. Mörkin úr leiknum má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Juventus 4-1 Udinese Juventus er í 5. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með 27 stig, tíu stigum á eftir toppliði AC Milan sem er einmitt næsti andstæðingur Juventus. Liðin mætast á San Siro á miðvikudaginn. Ronaldo er markahæstur í ítölsku úrvalsdeildinni með fjórtán mörk í aðeins ellefu leikjum. Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Ítalski boltinn, Serie A, er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Serie A er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Ítalski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira