Erlent

Orðin vön því að halda sig heima og hitta ekki neinn

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Strikið í Kaupmannahöfn í Danmörku er vinsælt en nú hefur öllum verið sagt að halda sig heima og umferðin því væntanlega afar lítil.
Strikið í Kaupmannahöfn í Danmörku er vinsælt en nú hefur öllum verið sagt að halda sig heima og umferðin því væntanlega afar lítil. Getty/NurPhoto

Danmerkurstjórn herti aðgerðir vegna kórónuveirunnar til muna í dag. Íslensk kona í Danmörku segist orðin vön því að vera heima og hitta ekki neinn.

Staðan hefur farið versnandi að undanförnu í ríkjunum í kringum okkur, meðal annars vegna bráðsmitandi bresks afbrigðis veirunnar, og hafa aðgerðir verið hertar mjög. Bretlandsstjórn setti á útgöngubann í gær.

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, sagði svo frá því á blaðamannafundi að þar í landi yrðu samkomutakmarkanir hertar og að fleiri en fimm megi ekki hittast. Hún bað landsmenn um að halda sig heima og hitta einungis nánustu fjölskyldu.

Freyja Finnsdóttir býr með manni sínum og börnum í Herlev, rétt utan við Kaupmannahöfn, þar sem staðan er einna verst í Danmörku.

„Það er bara allt lokað. Við erum svolítið til baka eins og þetta var 11. mars þegar landinu var lokað. Börnin eru komin heim í skóla. Ég er sjálf að kenna og er búin að vera að kenna heima síðan um miðjan desember. Já, maður er bara orðinn vanur að vera heima og hitta ekki neinn.“

Hún segist hafa búist við hertum takmörkunum en þær séu þó engin sérstök tilbreyting. „Við erum náttúrulega búin að lifa svona allan tímann. Þó það hafi létt á yfir sumarið varð það aldrei eins og á Íslandi,“ segir Freyja.

Þrátt fyrir sókn faraldursins sé hún bjartsýn. „Það lítur út fyrir að bólusetningarnar gangi betur en þau bjuggust við. Þannig ég og maðurinn, sem erum í síðasta hópnum, hresst fólk undir 65, sem áttum að fá bólusetningu fyrst í nóvember en nú lítur kannski út fyrir að við fáum hana í sumar, ef við fáum að fara í sumarfrí til Íslands í sumar erum við bara nokkuð góð.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×