Kim Kardashian og Kanye West sögð leggja drög að skilnaði Hólmfríður Gísladóttir skrifar 6. janúar 2021 06:16 Laura Wasser, sem er sögð lögmaður Kardashian, er þekkt fyrir að ráðlegga skjólstæðingum sínum að komast að samkomulagi og undirrita trúnaðarsáttmála, áður en sótt er um skilnað fyrir dómstólum. epa/Ringo Chiu Skilnaður Kim Kardashian og Kanye West er yfirvofandi, ef marka má slúðurmiðla vestanhafs. „Hún er hætt,“ hefur Page Six eftir heimildarmanni en TMZ segir parið enn í hjónabandsráðgjöf.
Ein fyrsta myndin sem tekin var af parinu eftir að þau byrjuðu saman árið 2012.epa/Michael Nelson Corbis Out Page Six hefur eftir heimildarmönnum að Kardashian og West vinni nú að því að koma málum sínum á hreint en þau hafa búið á sitt hvorum staðnum um nokkurt skeið og vörðu jólunum ekki saman. Hún var með börnin í Calabasas en hann hefur haldið sig á búgarðinum sem hjónin eiga í Wyoming. Kardashian hefur ekki sést með giftingahringinn í einhvern tíma og þá hefur Page Six heimildir fyrir því að hún hafi ráðið lögmanninn Lauru Wasser til að annast skilnaðinn en TMZ segir Wasser hafa verið lögmann Kardashian til lengri tíma. Meðal annarra þekktra kúnna Wasser eru Angelina Jolie og Johnny Depp. Búin að fá nóg hvort af öðru Kardashian stefnir að því að verða lögfræðingur og er sögð alvara í því að vilja vinna að úrbótum í fangelsismálum. Hún vilji ekkert vita af metnaði West til að verða næsti forseti Bandaríkjanna.epa/Shawn Thew „Kim fékk Kanye til að fara uppeftir [til Wyoming] til að þau gætu lifað aðskildu lífi og fundið út út úr því í næði að fara í sitt hvora áttina og skilja. Hún er hætt,“ hefur Page Six eftir heimildarmanni. Kardashian hefði lagt sig fram um að vera til staðar fyrir Kanye í glímu hans við geðræn vandamál en nú vildi hún einbeita sér að því að verða lögmaður og berjast fyrir úrbótum í fangelsismálum. „Á sama tíma er Kanye að tala um að bjóða sig fram til forseta og segja aðra klikkaða hluti og hún er bara búin að fá nóg.“ West er sagður hafa fengið nóg af yfirdrifnum lífstíl Kardashian-fjölskyldunnar, sem birtist heimsbyggðinni fyrst í raunveruleikaþættinum Keeping Up With The Kardashians.epa/Justin Lane Annar heimildarmaður segir West vera búinn að fá sig fullsaddan af Kardashian fjölskyldunni og raunveruleikaþátta-lífstíl hennar. Í júlí fór þúsundþjalasmiðurinn mikinn á Twitter og sagðist hafa verið að reyna að fá skilnað frá Kardashian. Þá kallaði sakaði hann eiginkonuna um að reyna að neyða sig í geðræna meðferð og kallaði tengdamóður sína „Kris Jong-Un“. Heimilið í Calabasas sagt helsta ágreiningsmálið North West er elst fjögurra barna Kardashian og West en það yngsta er nítján mánaða.epa/Abir Sultan West er sagður hafa verið tilneyddur til að mæta í afmælisveislu Kardashian á Tahítí í október síðastliðnum, þar sem hann gaf Kardashian almynd af föður hennar heitnum, Robert Kardashian. Page Six hefur eftir heimildarmanni að stærsta deilumálið í tengslum við skilnaðinn verði heimili hjónanna í Calabasas, sem var hannað í samvinnu við belgíska hönnuðinn Axel Vervoordt og kostaði parið samtals 7,6 milljarða króna. Það er þó ekki peningurinn sem ku skipta mestu máli, heldur fasteignin sjálf, sem fjallað var um í Architectural Digest. Kardashian ku eiga landið en West húsið. TMZ gengur ekki alveg jafn langt og Page Six og segir Kardashian og West enn í hjónabandsráðgjöf. Kardashian hafi farið fram og til baka með það að sækja um skilnað en engar ákvarðanir verið teknar. Haft er eftir heimildarmönnum að enginn þriðji aðili sé í spilinu.
Bandaríkin Hollywood Tengdar fréttir Kanye viðurkennir ósigur en gefur framboði 2024 undir fótinn Rapparinn, fatahönnuðurinn og athafnamaðurinn Kanye West reið ekki feitum hesti í forsetakosningunum í Bandaríkjunum sem fram fóru síðastliðinn þriðjudag, og hverra úrslit liggja ekki enn fyrir. 7. nóvember 2020 09:07 Faðir Kim reis upp frá dauðum í afmælinu Kim Kardashian varð fertug 21. október en hún er fædd árið 1980. 30. október 2020 12:30 Kim Kardashian er fertug: Hlutirnir sem þú vissir mögulega ekki um raunveruleikastjörnuna Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er fertug í dag og var rætt við einn af hennar helstu íslensku aðdáendum í Brennslunni í morgun en Birta Líf Ólafsdóttir er mikill aðdáandi. Kim fæddist 21. október árið 1980. 21. október 2020 14:31 Keeping Up With the Kardashians líða undir lok Nú er ljóst að aðeins verður framleidd ein þáttaröð í viðbót af hinum geysivinsælu raunveruleikaþáttum Keeping Up With the Kardashians. Frá þessu greinir Kim Kardashian á Instagram. 8. september 2020 22:03 Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Candace Owens hitti fjandmann Blake Lively í Keflavík Glee-stjarna fagnaði 40 árum á Íslandi „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Sjá meira
Kanye viðurkennir ósigur en gefur framboði 2024 undir fótinn Rapparinn, fatahönnuðurinn og athafnamaðurinn Kanye West reið ekki feitum hesti í forsetakosningunum í Bandaríkjunum sem fram fóru síðastliðinn þriðjudag, og hverra úrslit liggja ekki enn fyrir. 7. nóvember 2020 09:07
Faðir Kim reis upp frá dauðum í afmælinu Kim Kardashian varð fertug 21. október en hún er fædd árið 1980. 30. október 2020 12:30
Kim Kardashian er fertug: Hlutirnir sem þú vissir mögulega ekki um raunveruleikastjörnuna Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er fertug í dag og var rætt við einn af hennar helstu íslensku aðdáendum í Brennslunni í morgun en Birta Líf Ólafsdóttir er mikill aðdáandi. Kim fæddist 21. október árið 1980. 21. október 2020 14:31
Keeping Up With the Kardashians líða undir lok Nú er ljóst að aðeins verður framleidd ein þáttaröð í viðbót af hinum geysivinsælu raunveruleikaþáttum Keeping Up With the Kardashians. Frá þessu greinir Kim Kardashian á Instagram. 8. september 2020 22:03