Næstum því tuttugu ár á milli þrjátíu stiga leikja hjá Loga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2021 12:32 Logi Gunnarsson hefur oft fundið sig vel á móti Haukaliðinu. Vísir/Bára Logi Gunnarsson átti sinn fyrsta þrjátíu stiga leik í fjögur ár þegar Domino´s deildin for aftur af stað í gærkvöldi. Logi skoraði 30 af 85 stigum Njarðvíkurliðsins í tveggja stiga tapi á móti Haukum í Ljónagryfjunni. Þetta var í fyrsta sinn frá því í nóvember 2016 sem Logi skoraði þrjátíu stig eða meira í úrvalsdeildinni. Þrír síðustu þrjátíu stiga leikir hans hafa allir komið á móti Haukum í Ljónagryfjunni. Logi heldur upp á fertugsafmælið sitt í september á þessu ári en hefur engu gleymt inn á körfuboltanum eins og hann sýndi í gærkvöldi. Það er líka orðið mjög langt síðan að Logi náði þessu afreki í fyrsta sinn á ferlinum í úrvalsdeildarleik. Logi skoraði í fyrsta sinn þrjátíu stig í leik í úrvalsdeildinni í lokaúrslitunum 2001. Logi skoraði þá 36 stig í leik tvö í lokaúrslitunum á móti Tindastól sem fór fram 10. apríl 2001. Hann skoraði líka 30 stig í leik fjögur þar sem Njarðvíkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn. Í gær voru því liðin nítján ár, níu mánuðir og fjögur ár síðan að Logi braut fyrst þrjátíu stiga múrinn á Íslandsmótinu. Hér fyrir neðan má sjá þrjátíu stiga leiki Loga Gunnarssonar í úrvalsdeild karla.
Logi skoraði 30 af 85 stigum Njarðvíkurliðsins í tveggja stiga tapi á móti Haukum í Ljónagryfjunni. Þetta var í fyrsta sinn frá því í nóvember 2016 sem Logi skoraði þrjátíu stig eða meira í úrvalsdeildinni. Þrír síðustu þrjátíu stiga leikir hans hafa allir komið á móti Haukum í Ljónagryfjunni. Logi heldur upp á fertugsafmælið sitt í september á þessu ári en hefur engu gleymt inn á körfuboltanum eins og hann sýndi í gærkvöldi. Það er líka orðið mjög langt síðan að Logi náði þessu afreki í fyrsta sinn á ferlinum í úrvalsdeildarleik. Logi skoraði í fyrsta sinn þrjátíu stig í leik í úrvalsdeildinni í lokaúrslitunum 2001. Logi skoraði þá 36 stig í leik tvö í lokaúrslitunum á móti Tindastól sem fór fram 10. apríl 2001. Hann skoraði líka 30 stig í leik fjögur þar sem Njarðvíkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn. Í gær voru því liðin nítján ár, níu mánuðir og fjögur ár síðan að Logi braut fyrst þrjátíu stiga múrinn á Íslandsmótinu. Hér fyrir neðan má sjá þrjátíu stiga leiki Loga Gunnarssonar í úrvalsdeild karla. Þrjátíu stiga leikir Loga Gunnarssonar í úrvalsdeild karla 10. apríl 2001: 36 sitg á móti Tindastól (úrslitakeppni) 17. apríl 2001: 30 stig á móti Tindastól (úrslitakeppni) 30. október 2008 - 39 stig á móti ÍR 16. janúar 2008: 34 stig á móti Grindavík 22. nóvember 2013: 41 stig á móti Haukum 16. nóvember 2016: 34 stig á móti Haukum 14. janúar 2021: 30 stig á móti Haukum Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Þrjátíu stiga leikir Loga Gunnarssonar í úrvalsdeild karla 10. apríl 2001: 36 sitg á móti Tindastól (úrslitakeppni) 17. apríl 2001: 30 stig á móti Tindastól (úrslitakeppni) 30. október 2008 - 39 stig á móti ÍR 16. janúar 2008: 34 stig á móti Grindavík 22. nóvember 2013: 41 stig á móti Haukum 16. nóvember 2016: 34 stig á móti Haukum 14. janúar 2021: 30 stig á móti Haukum
Domino's-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Domino's-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Dominos-deild karla Mest lesið John Cena hættur að glíma Sport Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Fótbolti Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Enski boltinn Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Fleiri fréttir KR-konur og Stólarnir örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Kjartan Atli lætur af störfum Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Curry sneri aftur með miklum látum Uppgjörið:Njarðvík - Þór Þorlákshöfn 92-93| Stigin til Þorlákshafnar eftir háspennu Álftanes - Tindastóll 78-137 | Metin slegin í stórsigri Stólanna „Get ekki verið fúll út í mína menn“ Fyrsti sigurinn í rúman mánuð: „Sýndum í dag að við erum með gott lið“ Uppgjörið: KR - ÍR 102-96 | Langþráður KR-sigur ÍA - Stjarnan 85-115 | Meistararnir búnir að finna gírinn Uppgjörið: Valur - Keflavík 111-91 | Valur þurfti ekki að hafa mikið fyrir fimmta sigrinum í röð Uppgjörið: Grindavík - Ármann 105-85| Nýliðarnir létu toppliðið vinna fyrir kaupinu sínu Hafa jafnað við metlið Golden State Warriors Uppgjörið: Njarðvík-Valur 94-90| Frábær endurkomu sigur skilar Njarðvík toppsætinu Stjarnan steig á bensíngjöfina og kláraði Tindastól að lokum Tryggvi hafði hægt um sig í sigri „Ég er yfirleitt ekki með neinn kjaft“ Leik lokið: Ármann 70 - 106 Grindavík | Stórsigur Grindavíkur á lánlausum nýliðum Leik Lokið: Haukar 86 - 92 KR | Nýliðarnir höfðu betur gegn meisturunum Fyrsti sigur Hamars/Þórs kom gegn Keflavík Tindastóll með fellu gegn Keilu í Eistlandi Söguleg frammistaða á Extra-leikunum: „Ég get ekki svekkt mig á þessu“ „Hann er ekkert eðlilega mikilvægur “ Rekinn út úr húsi vegna viðbragða þegar mótherji ætlaði að hlera leikhléið Sjá meira