Kvensjúkdómalæknir segir Kristján ætla sér að rústa Krabbameinsfélaginu Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa 28. janúar 2021 22:01 Benedikt Óskar Sveinsson, kvensjúkdómalæknir, segir Kristján Oddsson ætla sér að rústa Krabbameinsfélaginu í hefndarskini eftir að hafa verið sagt upp fyrir nokkrum árum. Vísir/Vilhelm Benedikt Óskars Sveinsson, kvensjúkdómalæknir sem starfaði á tuttugu ára tímabili fyrir Krabbameinsfélag Íslands segir Kristján Oddsson ætla sér að rústa Krabbameinsfélaginu í hefndarskyni eftir að hafa verið sagt upp þar fyrir nokkrum árum.
Kristján er fagstjóri lækninga hjá heilsugæslunni í Hamraborg og hafði umsjón með flutningi krabbameinsskimunar frá KÍ til heilsugæslunnar um áramótin. Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gær að hópur kvenna þyrfti að mæta aftur í leghálsskoðun hjá Krabbameinsfélaginu vegna þess að ekki verður hægt að fullrannsaka tvö þúsund sýni sem Krabbameinsfélagið tók í desember. Sýnunum var skilað til heilsugæslunnar í Hamraborg um áramótin sem virðist samkvæmt skriflegum samskiptum hafa verið tillaga heilbrigðisráðuneytisins. Krabbameinsfélagið ætti að bjóða upp á skimun til 30. nóvember og þau sýni sem ekki tækist að greina fyrir áramót myndi rannsóknarstofan, sem tæki við rannsóknum af Krabbameinsfélaginu, sjá um að greina. Nú er ljóst að rannsóknarstofa í Danmörku, sem til stendur að semja við til langs tíma um rannsókn á sýnum, nær því ekki. Óhætt er að segja að Benedikt blöskri tíðindi af Krabbameinsfélaginu og Kristjáni Oddssyni sem var falið það hlutverk af heilbrigðisráðuneytinu að leiða flutning á skimunum frá félaginu og til heilsugæslunnar. Segir aðförina að KÍ snúast um uppsögn Kristjáns Benedikt var starfsmaður hjá leitarstöð Krabbameinsfélagsins í um tuttugu ár. Hann sá um sýnatökur í leitarstöðinni og eftir að hafa lokið sérnámi vann hann við myndgreiningar á grindarholi kvenna. „Ég þekki starfsemina vel. Ég kom þarna í hverri viku í tuttugu ár,“ segir Benedikt. Hann vill að það sé alveg skýrt að eitt af verkum Kristjáns, sem yfirmaður hjá Krabbameinsfélaginu á sínum tíma, hafi verið að víkja honum úr starfi. Það hafi að vísu verið skiljanlegt enda var verið að leggja niður myndgreiningar sem Benedikt sinnti. „En að gera það með tveimur línum í tölvupósti eftir tuttugu ára starf segir allt sem segja þarf,“ segir Benedikt um uppsögn sína. Kristjáni hafi svo sjálfum verið sagt upp störfum þar sem hann og stjórnin hafi ekki séð hlutina sömu augum. „Síðan honum var vikið út starfi KÍ hefur hann linnulaust í ræðu og riti unnið að því að rústa skimunarstarfsemi KÍ bæði hvað varðar legháls og brjóst.“ Segir hefnd Kristjáns bitna á öllum íslenskum konum Benedikt segir það skjóta skökku við að heilbrigðisráðuneytið og heilsugæslan hafi ráðið Kristján inn sem sinn aðalráðgjafa í skimunarmálum. Benedikt segir það deginum ljósara að Kristján sé að hefna sín á Krabbameinsfélaginu vegna uppsagnar hans. „Hann hefur komið þannig fram að það blasir í gegn í hverju hans spori að hann er að hefna sín á Krabbameinsfélaginu og lætur það bitna á öllum íslenskum konum,“ segir Benedikt. Hann segir að staðhæfingar Kristjáns um að vinnsla KÍ á sýnunum hafi verið klúður, sýnin ómöguleg og vinna frumurannsóknarstofunnar hafi gengið illa eigi sér engan fót í raunveruleikanum. „Í fyrsta lagi hefur þessi starfsemi verið í um sextíu ár og þótt að eitt og eitt sýni fari fram hjá í öllu því sem er gert er það ekkert miðað við mistök almennt í heilbrigðiskerfinu. Í öðru lagi hefur þessi skimun bjargað hundrað eða þúsundum kvenna. Það er óumdeilt,“ segir Benedikt. „Þessi starfsemi er rómuð erlendis. Þetta er hvergi til nema hér að eitt félag haldi utan um brjóst og legháls og fylgi því eftir eins og KÍ hefur gert. Árangurinn hefur verið alveg ótrúlega góður. Að vísu hefði aðsóknin mátt vera betri en það er þá fyrir menn eins og Kristján og aðra að vera með herferðir til að fá fleiri konur í skimun en ekki að rústa starfseminni,“ segir Benedikt. „Ég held að þetta snúist um það að Kristjáni Oddssyni hafi verið vikið úr starfi og síðan þá hefur þetta verið linnulaust,“ segir Benedikt. „Þetta er hans verk að rústa Krabbameinsfélaginu.“ Fréttastofa hafði samband við Kristján varðandi málið sem vildi ekki tjá sig um það að svo stöddu. Kristján ræddi skimunarmálin í Kastljósi í kvöld þar sem hann sagði ljóst að Krabbameinsfélagið hefði átt að ljúka við að fullrannsaka þessi tvö þúsund sýni sem að lokum lentu í fangi heilsugæslunnar. „Þeim hefði átt að verða það ljóst fyrir einhverjum mánuðum síðan, og það var reyndar ljóst í nóvember 2019, að þessi starfsemi myndi fara frá þeim. Þeir hefðu þurft að hætta skimun, þannig að fólk fær boð um að koma þegar þarf að draga úr þessum boðsbréfum, draga úr starfseminni hægt og rólega þannig að þeir gætu skilið við með þeim hætti að það væru engin órannsökuð sýni hjá þeim,“ sagði Kristján í Kastljósi. Aðspurður hvers vegna heilsugæslan hefði ekki gert samning við Landspítalann, veirufræði- og meinadeild hans, um að greina sýnin tvö þúsund sem heilsugæslan hefur haft undir höndum í um mánuð sagði Kristján það vera vegna þess að heilsugæslan hafði hafið samningsviðræður við rannsóknarstofu í Danmörku. „Það tafðist vegna Covid, hefði það ekki orðið værum við komin með svör úr þessu[m sýnum]. Þetta mun leysast, það er engin spurning um það,“ sagði Kristján. Þá sagði hann sýnin sem bíða nú í húsnæði heilsugæslunnar ekki ónýt. Ekki sé hægt að fullrannsaka þau, þar sem þau eru í öðruvísi sýnaglösum en danska rannsóknarstofan notar. Hins vegar sé hægt að greina hvort HPV veiran finnist í sýnunum og þær konur, sem yrðu að meðaltali 12 prósent, þurfi að koma aftur í sýnatöku svo hægt sé að greina hvort þær séu með frumubreytingar.
Skimun fyrir krabbameini Heilbrigðismál Mistök við greiningu hjá Krabbameinsfélaginu Heilsugæsla Tengdar fréttir Krabbameinsfélagið sakar Kristján um lygar: Ráðuneytið vissi í október að tvöþúsund sýni yrðu ógreind í árslok Heilbrigðisráðuneytið vissi fullvel að um tvöþúsund leghálssýni yrðu óskoðuð í árslok, þegar skimanir færðust frá Krabbameinsfélaginu til heilsugæslunnar. Þetta sýna tölvupóstsamskipti milli formanns KÍ og ráðuneytisins. 28. janúar 2021 15:57 Konur sem áttu sýni í pappakössunum þurfa að koma aftur í sýnatöku Í Danmörku verður ekki hægt að fullrannsaka þau tvö þúsund leghálssýni sem lágu í nokkrar vikur í pappakössum. Hluti kvennanna verður því kallaður í sýnatöku á ný. Læknir segir óskiljanlegt að Krabbameinsfélagið hafi skilið við verkefnið með þessum hætti. 27. janúar 2021 19:01 Mest lesið Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Erlent Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Erlent Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Erlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Erlent Fleiri fréttir Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Sjá meira
Krabbameinsfélagið sakar Kristján um lygar: Ráðuneytið vissi í október að tvöþúsund sýni yrðu ógreind í árslok Heilbrigðisráðuneytið vissi fullvel að um tvöþúsund leghálssýni yrðu óskoðuð í árslok, þegar skimanir færðust frá Krabbameinsfélaginu til heilsugæslunnar. Þetta sýna tölvupóstsamskipti milli formanns KÍ og ráðuneytisins. 28. janúar 2021 15:57
Konur sem áttu sýni í pappakössunum þurfa að koma aftur í sýnatöku Í Danmörku verður ekki hægt að fullrannsaka þau tvö þúsund leghálssýni sem lágu í nokkrar vikur í pappakössum. Hluti kvennanna verður því kallaður í sýnatöku á ný. Læknir segir óskiljanlegt að Krabbameinsfélagið hafi skilið við verkefnið með þessum hætti. 27. janúar 2021 19:01