Aftur tapaði Liverpool á Anfield og Lingard skoraði tvö gegn Villa Anton Ingi Leifsson skrifar 3. febrúar 2021 22:05 Leikmenn Brighton fagna sigurmarkinu en vonsvikinn Robertson í forgrunni. Andrew Powell/Getty Brighton náði í óvænt þrjú stig á Anfield í kvöld er liðið vann 1-0 sigur á ensku meisturnum í Liverpool. Á sama tíma sóttu David Moyes og lærisveinar í West Ham þrjú stig á Villa Park er liðið vann Aston Villa 3-1. Liverpool réð ferðinni, eins og búast var við, gegn Brighton á heimavelli í kvöld en ekki náðu þeir að skora í fyrri hálfleik. Þeir reyndu og reyndu en það voru hins vegar gestirnir frá Brighton sem skoruðu fyrsta markið á 56. mínútu. Leandro Trossard kom þá boltanum á Steven Alzate sem skoraði sitt fyrsta úrvalsdeildarmark. Jurgen Klopp hreyfði aðeins við liðinu eftir markið en allt kom fyrir ekki, þrátt fyrir ákefð Liverpool, og lokatölur 1-0 sigur suðurstrandarmanna. Sá fyrsti á Anfield síðan 1984. 1 - Steven Alzate has scored his first Premier League goal in his 28th appearance, and from what was the very first shot on target of the match against Liverpool. Firsts. pic.twitter.com/6aNGMv9jAQ— OptaJoe (@OptaJoe) February 3, 2021 Þetta er annað tapið á heimavelli í röð hjá ensku meisturunum en þeir töpuðu fyrir Burnley áður en þeir unnu á útivelli gegn Tottenham og West Ham. Liverpool er í fjórða sætinu með 40 stig, sjö stigum á eftir toppliði City, en þau mætast á sunnudag. Brighton er í fimmtánda sætinu. Tomas Soucek hefur verið magnaður hjá West Ham og hann bætti við enn einu markinu fyrir Hamranna í dag. Hann skoraði fyrsta markið á 51. mínútu og fimm mínútum síðar var það nýi maðurinn, Jesse Lingard, sem tvöfaldaði forystuna en Lingard var í byrjunarlið West Ham. Ollie Watkins klóraði í bakkann á 83. mínútu en lánsmaðurinn frá Manchester United, Lingard, var ekki hættur því hann kom Hömrunum í tveggja marka forystu á ný er hann skoraði þriðja mark West Ham og annað mark sitt tveimur mínútum eftir mark Villa. Lokatölur 3-1. Jesse Lingard in the Premier League:2019-20: 22 appearances, 1 goal2020-21: 1 appearance, 2 goalsCall it a comeback. ⚒ pic.twitter.com/9TyACZAmp3— William Hill (@WilliamHill) February 3, 2021 West Ham er í fimmta sæti deildarinnar með 38 stig, einungis tveimur stigum frá Liverpool sem er sæti ofar og sex stigum á eftir Manchester United í öðru sætinu. Aston Villa er í níunda sætinu með 32 stig en þetta var þeirra þriðja tap í síðustu fimm úrvalsdeildarleikjum. Enski boltinn