Freyja hafi vitað af fyrri dómi sem maðurinn hlaut fyrir morð Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 5. febrúar 2021 12:40 Bæjarbúar í Malling minnast Freyju. Vísir/Elín Margrét Boðað hefur verið til minningarathafnar í Malling á Austur-Jótlandi sídegis í dag, til minningar um Freyju Egilsdóttur Mogensen, sem var myrt í síðustu viku. Nákomin vinkona Freyju segir í samtali við Ekstra Bladet að Freyja hafi vitað að eiginmaður hennar, sem hún hafði slitið samvistum við, hafi áður hlotið dóm fyrir morð.
Maðurinn tilkynnti lögreglu snemma á þriðjudagsmorgni að Freyja væri horfin. Tilkynningin þótti grunsamleg og fannst Freyja látin á heimili sínu. Líkamspartar hennar fundust bæði innandyra og í garðinum við húsið. Maðurinn sætir nú fjögurra vikna gæsluvarðhaldi en hann er sagður hafa játað á sig verknaðinn fyrir lokuðu réttarhaldi í Árósum á miðvikudag. Bæjarbúar minnast Freyju Í samtali við fréttastofu segir Michael Kjeldgaard, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Austur Jótlandi, að engar nýjar vendingar hafi orðið í málinu sem unnt sé að greina frá, umfram það sem þegar hafi komið fram. Hverfið Veilgårdsparken í Malling er rólegt og fjölskylduvænt að því er virðist og einkennist af stórum og glæsilegum einbýlishúsum umhverfis lítinn garð með leikvelli. Eitt stóru einbýlishúsanna stingur nú í stúf við hin. Rauður og hvítur borði merktur Politi afmarkar nú alla lóðina og húsið og innsigli er á hurðinni. Á tröppum útidyrahurðarinnar liggur fjöldinn allur af blómum og kertakerum sem vinir og nágrannar Freyju hafa lagt í minningu hennar. Sóknarprestur við kirkjuna í Malling staðfestir í samtali við fréttastofu að síðdegis hafi verið skipulögð minningarstund þar sem vinum, nágrönnum og öðrum íbúum bæjarins gefst færi á að tendra kerti í minningu Freyju. Kirkjan kýs að öðru leyti ekki að tjá sig um málið að svo stöddu. Bærinn sé í sárum. Vinkonan segir Freyju og manninn ekki hafa átt í forræðisdeilu Ekstra Bladet greinir frá því í dag, og hefur eftir náinni vinkonu Freyju, að hún hafi vitað af fortíð mannsins. Líkt og fram hefur komið hlaut hann árið 1996 dóm fyrir að hafa orðið fyrrverandi kærustu sinni og barnsmóður að bana í nóvember 1995. Freyja hafi óttast það mest, eftir að þau slitu samvistum, hvað maðurinn hennar fyrrverandi kynni að gera sjálfum sér. Þetta segir Camilla Levisen, sem var með Freyju í námi, í samtali við blaðið. „Ég talaði síðast við hana á fimmtudaginn í síðustu viku á Messanger, og það virtist sem hún væri með sjálfri sér. Svo hún vissi væntanlega ekki hvað væri í uppsiglingu,“ segir Levisen. Hún segist aldrei hafa hitt mann Freyju en að hún hafi haft veður af því að hann hafi glímt við geðræn veikindi um langan tíma. Vinkonur hennar hafi stutt Freyju þegar hún tók ákvörðun um að slíta sambandinu. Hún segir að svo virtist sem Freyja væri hamingjusamari og að léttara væri yfir henni eftir sambandsslitin. „En henni þótti það erfitt, að hann skildi ekki að hún vildi halda fjarlægð,“ segir Levisen. Þá segir hún að Freyja hafi eftir skilnaðinn í fyrra sagt vinkonunum frá því að maðurinn hafi hlotið dóm fyrir morð. Hún og aðrar vinkonur Freyju hafi verið til staðar fyrir hana í gegnum skilnaðinn. „Hún var hrædd um, hvað hann kynni að gera sjálfum sér ef hún færi frá honum,“ segir Levisen, spurð hvort Freyja hafi verið hrædd við manninn. „En hún hefur aldrei lýst því yfir að hann myndi gera henni mein. Ég held að svo hafi heldur ekki verið, því þá hefði hún ekki leyft honum að koma inn á heimilið.“ Aðspurð segir Levisen að þau hafi ekki átt í forræðisdeilu. Þvert á móti hafi þau verið með samkomulag um hver væri með börnin hvenær. Levisen segir aftur á móti að þegar hún heyrði fyrst fréttirnar af hvarfi Freyju hafi hún strax fundið á sér að líklega hafi maðurinn haft eitthvað með hvarf hennar að gera. „Ég fór beint heim til mannsins míns og sagði „hún er ekki hér lengur,“ segir Levisen. Allir þekkja alla í Malling „Þetta er sprengjuhögg sem hefur dunið á samfélagi okkar,“ segir Henny Møller, íbúi í Malling, í samtali við Jyllands Posten. „Það er svo einkennilegt, því ef þetta hefði gerst í Kaupmannahöfn, þá hefi maður hugsað: „jæja, en það var nú gott að þetta gerðist ekki hérna hjá okkur í yndislegu, litlu Malling, þar sem svona lagað hreinlega gerist ekki,“ bætir Møller við. Hún er í forsvari fyrir Facebook-hóp íbúa í Malling og segir marga hafa sett sig í samband við sig eftir að fréttir bárust af þessum hræðilega atburði. Hún lýsir Freyju sem afar viðkunnalegri konu. Málið hafi fengið á alla bæjarbúa og sé á allra vörum. Það hafi aftur á móti líka sýnt sig á þessum erfiðu tímum hversu mikil samheldni er meðal bæjarbúa. „Allir þekkja hvern annan í kross hér í Malling. Og því voru margir sem settu sig í samband við mig og sögðu einfaldlega; „Henny, hvað getum við gert?“ En það var ekki margt sem hægt var að gera,“ segir hún við Jyllands Posten.
Morð í Malling Danmörk Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira