Segir móðurhlutverkið hafa gert hana að betri leikmanni og stefnir á að verða fyrirmynd fyrir mæður í íþróttaheiminum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 14. mars 2021 09:00 Dagný Brynjarsdóttir í leik með West Ham gegn stórliði Chelsea á dögunum. Catherine Ivill/Getty Images Dagný Brynjarsdóttir, leikmaður West Ham United í ensku úrvalsdeildinni, var í ítarlegu viðtali hjá The Telegraph þar sem hún fór meðal annars yfir það hvernig móðurhlutverkið hefur gert hana að betri leikmanni.
Þá nefnir hún einnig æskuvin sinn Tómas Steindórsson í viðtlainu en hann ku vera aðalástæða þess að Dagný hefur stutt West Ham frá unga aldri. Claret & Blue through and through @dagnybrynjars pic.twitter.com/YnuPZYAuIS— West Ham United Women (@westhamwomen) January 28, 2021 Dagný er í einkar fámennum hópi leikmanna í ensku úrvalsdeildinni. Samkvæmt könnum, sem er þó orðin fjögurra ára gömul, er aðeins eitt prósent leikmanna deildarinnar mæður. Dagný ræðir umræðuna í kringum hana sem íþróttakonu eftir að í ljós kom að hún væri ólétt af synu sínum Brynjari í viðtalinu. Fólk lét eins og ferillinn væri einfaldlega búinn þó hún væri í raun á besta aldri. „Haldið þið að ég verði ekki nægilega góð bara af því ég er að fara eignast barn? Það er heimskulegt. Af hverju ætti ég ekki að vera góð, af því ég er mamma? Bíðið bara og sjáið til,“ segir Dagný er hún lýsir viðbrögðum sínum við fáviskunni hér að ofan. „Að verða móðir er það besta sem gat komið fyrir mig. Áður en ég varð ólétt taldi ég lífið einöngu snúast um fótbolta, svo eignaðist ég son og veit nú að lífið snýst um meira en fótbolta. Nú er það undir íþróttafélögum, fjölmiðlum og í raun öllum komið að sýna fram á að þú getir enn verið meðal bestu leikmanna í heimi.“ Dagný hefur alls 90 leiki fyrir íslenska kvennalandsliðið og skorað í þeim 29 mörk.Vísir/Vilhelm Stefnir á að vera fyrirmynd fyrir mæður „Ég vil sýna sjálfri mér og öðrum að það er ekki byrði að vera móðir, það gefur þér svo mikið. Síðan ég varð mamma er ég betri leikmaður og betri liðsfélagi. Ég er rólegri og þó ég telji mig hafa verið almennilega áður þá er ég mun almennilegri núna. Einnig er ég mun þolinmóðari en áður.“ „Áður fyrr hugsaði ég um leiki þar sem ég spilaði illa eða tapaði í allt að þrjá daga. Nú hef ég ekki tíma til þess þegar ég kem heim þar sem mín bíður annað hlutverk þar.“ Endurkoman erfiðari en hún hélt „Ég hélt þetta væri eins og að koma til baka eftir meiðsli en þetta var mun erfiðara en það. Það er mikil vinna á bakvið endurkomuna, líkamleg og andleg. Andlega var þetta erfitt því fólk sagði bara við mig að ég myndi aldrei spila geta spilað við þær bestu aftur og ætti bara að sætta mig við að spila á Íslandi.“ Dagný talaði vel um fyrrum félag sitt í Bandaríkjunum, Portland Thorns. Liðið framlengdi samning hennar þegar hún var ólétt og hjálpaði henni í endurkomunni en á endanum fannst henni það ekki fara saman að spila þar og vera með ungt barn heima. „Það var of erfitt að vera í Bandaríkjunum því þau eru svo stór. Stundum var ég í burtu í tíu daga í einu. Upphaflega tók ég son minn með mér þegar hann var á brjósti en gat það ekki til lengdar. Það þýddi að ég væri mögulega frá honum í fleiri mánuði á ári.“ „Kvenkyns leikmenn fá ekki nægilega mikið borgað til að ég gæti tekið eiginmann minn og son með mér þegar við fórum í langar ferðir til að spila útileiki eða þá þegar ég var í landsliðsverkefnum. Ég hafði ekki efni á því að bóka flug, hótel og allt sem því fylgir fyrir okkur aftur og aftur.“ „Þó svo að ég elski fótbolta þá elska ég það meira að vera mamma svo ég var ekki tilbúin að eyða svona miklum tíma án sonar míns. Það er ástæðan fyrir því að ég kom aftur til Evrópu að spila.“ Dagný kann vel við sig í Lundúnum en hún þarf að vera upp á sitt besta ef West Ham vill halda sæti sínu í deildinni.Harriet Lander/Getty Images Greinin endar á að taka fram að Alþjóðaknattspyrnusambandið hafi sett ný lög er varðar réttindi óléttra leikmanna. Fari félög ekki eftir þeim reglum gætu þau verið sett í félagaskiptabann. Það er því aldrei að vita nema mun fleiri mömmur verði að spila í ensku úrvalsdeildinni áður en langt um líður.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Vinkonur og liðsfélagar létust á leið heim af æfingu Sport Segir að sigurkarfa Elvars hafi verið ólögleg Körfubolti Skellur fyrir bankabók HSÍ Handbolti Allir sem hylji munninn verði reknir út af Fótbolti Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Enski boltinn Roy Keane næstum búinn að skemma feril Heimis Fótbolti Sara og fjölskylda örugg en staðan hræðir Fótbolti „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Enski boltinn Sjáðu hetjudáðir Sesko, hornamörk Arsenal og ófarir Tottenham Enski boltinn Búin að þríbæta þrjátíu ára met Guðrúnar Sport Fleiri fréttir „Hjartað mitt hætti næstum því að slá“ „Ég hef bara miklar áhyggjur af þessu“ Sjáðu hetjudáðir Sesko, hornamörk Arsenal og ófarir Tottenham Liverpool rak sérfræðinginn sinn og þá fór allt að gerast Arsenal vann hornspyrnukonsert Fjórða tap Tottenham í röð og fallhættan heldur áfram Sjóðheitur Sesko sendi United upp í þriðja sæti Harmar baulið á leikmenn sem fengu að brjóta föstu Sjáðu mörkin: Samherji Hákonar algjör klaufi og mikið drama í lokin Sjáðu Semenyo setja pressu á Arsenal og markasúpu Liverpool Semenyo hetjan og stutt í Arsenal Samherji skoraði tvö hjá Hákoni í hádramatískum slag Aldrei spurning á Anfield Evanilson kom í veg fyrir sætaskipti Hákon Rafn fær langþráð tækifæri í dag Segir stjörnuleikmanni sínum að hætta að hugsa um Arsenal Liverpool borgar hæstu launin í ensku úrvalsdeildinni Chelsea setti enskt met í taprekstri Botnliðið með óvæntan sigur á Aston Villa Algjört bull að gefa í skyn að starf Jürgens Klopp sé í hættu Molde kaupir ungan leikmann frá Liverpool Sparkað frá Chelsea en trónir nú á toppi tilverunnar Þeir mega eiga kokteilana, við drekkum alvöru pintur Eina sem var öðruvísi var graslyktin í göngunum fyrir leikinn Man Utd skilaði hagnaði en skuldirnar hækkuðu samt Onana ætlar að koma sér aftur í markið hjá Man. Utd Tók til varna fyrir Sterling: „Hvað er eiginlega að ykkur?“ Rekinn eftir aðeins rúman mánuð í starfi Segir það forréttindi að vera með Man. United-pressuna á sér Portúgal vill fá enska unglingalandsliðsmanninn Sjá meira