Svæsin útbrot eftir að hafa verið sprautuð með AstraZeneca Jakob Bjarnar skrifar 16. mars 2021 15:00 Stella fékk fyrst einkenni sem hún taldi dæmigerð eftir bólusetningu en seinna komu fram einkenni sem hún er sannfærð um að AstraZeneca hafi vakið upp. Stella Jórunn A. Levy sjúkraliði fékk vel upphleypt útbrot um bringu og háls með tilheyrandi verk, kláða og sviða eftir bólusetningu. Hún telur víst að bóluefnið hafi vakið vírusinn.
Stella er íslenskur sjúkraliði og býr í Bergen, Noregi. Hún starfar á hjúkrunarheimili í Bergen og er einungis á næturvöktum. Vísir fékk hana til að segja frá því hvernig allt þetta kom til og gekk fyrir sig, en starfsfólki var boðið að þiggja bóluefni á vinnustað. Hefðbundin viðbrögð í fyrstu en svo komu útbrotin „Enginn var neyddur og full virðing tekin fyrir ákvörðun hvers og eins. Ég ákvað að láta bólusetja mig til að eiga greiðari og óhindraðan aðgang að ferðast milli Íslands og Noregs,“ segir Stella. Hún fékk fyrri sprautuna af tveimur af bóluefninu, AstraZenica 1. mars síðastliðinn. Bólusetning fór fram um miðjan dag á vinnustað og var framkvæmd af hjúkrunarfræðingi. Stella ákvað að þiggja bólusetninguna meðal annars til að geta ferðast milli Íslands og Noregs á mikilla vandkvæða. „Nóttina á eftir var ég lasin með hita, beinverki og höfuðverk.“ Stella segir það dæmigerð viðbrögð við bólusetningu en hún var svo einkennalaus með öllu um miðjan næsta dag fyrir utan eymsli í hnakka og herðum. „Sex dögum seinna, eða snemma morguns þann 7. mars, byrjaði ég að fá útbrot sem voru staðbundin við bringu og háls. Útbrotin breiddu síðan úr sér um bringu og háls, með tilheyrandi verk, kláða, sviða og voru vel upphleypt. Einnig var ég slöpp og þreytt en hitalaus.“ Langaði til að rífa af sér húðina Stella segir að í fyrstu hafi hún engar áhyggjur haft og hélt að þetta væri eitthvað lítilræði; „að ég hefði jafnvel rekið mig í. Ég sendi heimilislækninum mínum skilaboð tveimur dögum síðar, eða 9. mars, um þetta án þess að fá svar. Ég fór að lokum til læknis daginn eftir sem er þremur dögum eftir að ég fékk fyrstu útbrot, þann 10. mars og fékk uppáskrift fyrir kremi og töflum. En þar sem klukkan var orðin margt og ég þreytt vegna næturvaktavinnu þá fór ég ekki í apótekið fyrr en daginn eftir, fimmtudaginn 11. mars.“ Stella fór í veikindaleyfi frá vinnu, frá fimmtudegi og fram á mánudag og segir að það hafi verið rétt ákvörðun. Fyrri myndin er tekin 11. mars þegar Stella byrjaði á lyfjum við útbrotunum. Seinni myndin er tekin í dag. „Því ég var mjög þreytt. Ennþá fann ég fyrir eymslum í hnakka og herðum. Fyrir utan að farast úr kláða og langa að rífa af mér húðina, næstum ekkert mátti liggja á svæðinu. Og vá hvað ég skildi hlaupabólubörn vel! Þessi lyf og krem sem ég fékk eru að hjálpa mér helling, ég tek ennþá töflu og ber kremið á mig x5 á dag. Bæði töflur (800 mg) og krem (5%) heita Zovirax og eru hvorutveggja frá GSK lyfjafyrirtækinu. Þegar þetta er skrifað er ég nánast búin með uppáskrifað lyfjatímabil.“ Telur víst að bólefnið hafi vakið vírusinn Að sögn Stellu er nefnilega um að ræða ristill í húð (herpes zoster vírussýkingu) sem er náskylt hlaupabólu (Varicella-Zoster) og bráðsmitandi eins og reyndar hlaupabóla. Lyfið sem Stella hefur notað til að hemja útbrotin. „Þannig að það eina rétta fyrir utan allt annað var að taka veikindaleyfi til að smita engan á vinnustað, hvorki vistmenn né vinnufélaga. Ristill virkar þannig að ef fullorðinn einstaklingur fékk hlaupabólu sem barn er sá hinn sami með vírusinn „sofandi“ í líkamanum um óákveðinn tíma. Svo ef eitthvað kemur upp á svo sem slæm veikindi þá getur vírusinn vaknað úr dvala og þá kallast það ristill,“ útskýrir Stella. Þó hún sé sjúkraliði vill hún þó mæla með því að vilji fólk kynna sér þetta betur sé vert að skoða viðurkennda miðla í því sambandi, en einhvern veginn svona virkar þetta í meginatriðum. „Ég fékk sem sagt hlaupabólu sem barn, sem þýðir að ég get fengið ristil (Herpes Zoster) sem fullorðin, reyndar eins og margir aðrir. Ég er algjörlega sannfærð um að bóluefnið hafi kveikt á þessum vírus í líkamanum vegna þess að ég hef ekki verið að gera neitt nýtt, er heilsuhraust og ég passa vel upp á sjálfa mig. Ég hef til dæmis aldrei fengið frunsu (herpes simplex) eða neitt annað álíka.“ Krem og lyf hafa hjálpað Stella segir að lyf og krem hafi hjálpað henni mikið í þessum raunum. Þannig að hún er bjartsýn. „Enda er ég svo sem ekki ein um að hafa fengið ristil og þetta gengur yfir.“ Eins og áður sagði var um að ræða fyrri sprautuna bóluefnisins af tveimur. Staðan í Bergen er nú sú að hætt hefur tímabundið verið við með AstraZeneca-bóluefninu eins og víðar um Evrópu. Fréttir hafa verið fluttar þar sem greint hefur verið frá tilfellum þar sem fólk hefur fengið blóðtappa eftir bólusetninguna. Vísir greindi frá því í hádeginu að alþjóðlegar stofnanir hafi engar sannanir fyrir orsakasamhengi og hefur ákvörðunin verið gagnrýnd í ljósi þess; að hún kunni að ala á misskilningi. Stella segist ekki vita hvað taki við. Hún hafi spurt yfirmann sinn um það en hún hafi ekki getað svarað neinu þar um, enda ekki hennar að segja til um.
Bólusetningar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Íslendingar erlendis Noregur Tengdar fréttir Svíar stöðva einnig notkun á bóluefni AstraZeneca Heilbrigðisyfirvöld í Svíþjóð hafa ákveðið að stöðva notkun á bóluefni AstraZeneca þar til að Lyfjastofnun Evrópu hefur lokið rannsókn sinni á mögulegum aukaverkunum. Fjölmörg ríki Evrópu hafa nú þegar stöðvað notkunina, þar á meðal Ísland, eftir að fréttir bárust af því að að fólk hafi verið að fá blóðtappa í kjölfar sprautunnar. 16. mars 2021 08:23 Hittast á fundi og ræða bóluefni AstraZeneca Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar ætla að hittast í dag til að ræða bóluefnið frá Oxford-AstraZeneca, sem mörg Evrópuríki hafa ákveðið að hætta að nota tímabundið vegna fregna um að fólk hafi verið að fá blóðtappa í kjölfar sprautunnar. 16. mars 2021 07:04 Kynna hugsanleg næstu skref á fimmtudag Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) mun á fimmtudag ræða niðurstöður athugunar á mögulegum aukaverkunum bóluefnis AstraZeneca við Covid-19 og ræða hugsanleg næstu skref. 15. mars 2021 19:52 Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Innlent Fleiri fréttir Telja sig vita hvernig maðurinn lést Nýja göngubrúin yfir Sæbraut fer upp í næstu viku Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Vilja aðra tillögu í stað Völugötu sem átti að koma í stað Bjargargötu „Algjört þjófstart á sumrinu“ Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Yfirmaður herafla NATO á Íslandi Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Lögreglustjórafélagið fjallar um starfslok Úlfars Enn þjarmað að Flokki fólksins vegna styrkjamálsins Hægir verulega á fjölgun erlendra ríkisborgara Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Kaupa frekar gervigreindartónlist í þætti en frumsamið efni Laupur stelur senunni í Árbæjarlaug Bein útsending: Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi – Ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Sjá meira
Svíar stöðva einnig notkun á bóluefni AstraZeneca Heilbrigðisyfirvöld í Svíþjóð hafa ákveðið að stöðva notkun á bóluefni AstraZeneca þar til að Lyfjastofnun Evrópu hefur lokið rannsókn sinni á mögulegum aukaverkunum. Fjölmörg ríki Evrópu hafa nú þegar stöðvað notkunina, þar á meðal Ísland, eftir að fréttir bárust af því að að fólk hafi verið að fá blóðtappa í kjölfar sprautunnar. 16. mars 2021 08:23
Hittast á fundi og ræða bóluefni AstraZeneca Sérfræðingar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar ætla að hittast í dag til að ræða bóluefnið frá Oxford-AstraZeneca, sem mörg Evrópuríki hafa ákveðið að hætta að nota tímabundið vegna fregna um að fólk hafi verið að fá blóðtappa í kjölfar sprautunnar. 16. mars 2021 07:04
Kynna hugsanleg næstu skref á fimmtudag Sérfræðinganefnd Lyfjastofnunar Evrópu (EMA) mun á fimmtudag ræða niðurstöður athugunar á mögulegum aukaverkunum bóluefnis AstraZeneca við Covid-19 og ræða hugsanleg næstu skref. 15. mars 2021 19:52