Ströng sóttvarnarskilyrði þýða að Noregur spilar mikilvægan leik á Spáni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 26. mars 2021 23:01 Erling Haaland tókst ótrúlegt en satt ekki að skora gegn Gíbraltar. Hann ætlar eflaust að bæta upp fyrir það á morgun. Ian Martinez/Getty Images Á morgun mætast Noregur og Tyrkland í undankeppni HM 2022 í knattspyrnu. Leikurinn gæti skipt sköpum þegar undankeppninni lýkur en því miður fyrir Norðmenn verður leikurinn ekki spilaður í Noregi.
Líkt og kom fram fyrr í dag eru ströng sóttvarnarskilyrði í Noregi þessa dagana. Til að mynda fékk landsliðsmiðvörðurinn Ingibjörg Sigurðardóttir ekki leyfi til koma til móts við íslenska kvennalandsliðið en hún leikur með Noregsmeisturum Lilleström. Norðmenn hófu undankeppnina á 3-0 sigri á Gíbraltar á útivelli. Á sama tíma unnu Tyrkir magnaðan 4-2 sigur á Hollendingum sem eru þriðja þjóðin sem munu gera tilkall til efstu tveggja sæta G-riðils. Það er því ákveðið högg fyrir Norðmenn að leikur morgundagsins fari ekki fram á Ullevaal-vellinum í Osló heldur á La Rosaleda-vellinum í Málaga á Spáni. Til að bæta gráu ofan á svart verður fyrirliði liðsins – Martin Ødegaard – að öllum líkindum ekki með vegna meiðsla sem hann varð fyrir gegn Gíbraltar. Leikur Noregs og Tyrklands verður í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport klukkan 17.00 á morgun.
Fótbolti Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Sjá meira