Fótbolti

Jökull hélt hreinu - Jafnt hjá Daníel Leó

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Jökull Andrésson.
Jökull Andrésson. Getty/Jacques Feeney

Tveir íslenskir knattspyrnumenn komu við sögu í neðri deildum Englands í fótbolta í dag.

Markvörðurinn efnilegi Jökull Andrésson stóð á milli stanganna hjá Exeter City sem vann 1-0 sigur á Salford City í ensku D-deildinni.

Daníel Leó Grétarsson hóf leik á varamannabekk Blackpool þegar liðið fékk Plymouth Argyle í heimsókn í C-deildinni. 

Daníel var skipt inná í hálfleik en þá var staðan 0-1 fyrir Plymouth.

Blackpool jafnaði metin strax í upphafi síðari hálfleiks og náði forystunni eftir klukkutíma leik. Plymouth náði hins vegar að jafna í uppbótartíma og niðurstaðan því 2-2 jafntefli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×