Jökullinn skartar sínu fegursta Mountaineers of Iceland 14. maí 2021 14:46 Mountaineers of Iceland bjóða spennandi ferðir um Langjökul. Mountaineers of Iceland Spennandi ferðir um Langjökul eru í boði hjá Mountaineers of Iceland. „
Núna er besti tíminn til þess að fara upp á jökul. Ennþá nægur snjór, sólin komin hátt á loft og veðrið er milt og gott. Það er frábært að skoða þetta svæði á vélsleða núna,“ segir Haukur Herbertsson, framkvæmdastjóri útvistarfyrirtækisins Mountaineers of Iceland en fyrirtækið býður hópferðir á vélsleða upp á Langjökul. „Við bjóðum upp á tvennar vélsleðaferðir, annarsvegar ferð þar sem keyrt er á sleðum um snjóbreiðuna á jöklinum og hinsvegar ferð þar sem stoppað er í íshellinum á austanverðum Langjökli,“ útskýrir Haukur. Stoppið í íshellinum er sérstaklega vinsælt og þar getur fólk tekið myndir og skoðað sig um. Útsýnið er einstakt yfir Hvítárvatn en sjálfur hellirinn nær 70 metra inn í jökulinn. Í ísveggjunum má lesa sögu Íslands allt að 400 ár aftur í tímann gegnum öskulög. „Ísinn er kristalstær og þéttur og til dæmis mjög skemmtilegt að lýsa með vasaljósi inn í ísvegginn því geislinn nær svo langt inn í ísinn,“ segir Haukur. „Við sækjum hópana við Gullfoss og skutlum fólki upp í skála í Geldingafelli við Bláfellsháls þar sem allir fá búnað sem þarf fyrir ferðina, heilgalla, yfirskó, hanska og hjálm. Svo keyrir hópurinn af stað inn á jökulinn. Allar ferðir eru farnar með fararstjórum frá okkur. Miðað er við tvo á hvern sleða en þeir sem vilja fá að keyra einir geta gert það gegn aukagjaldi en bílpróf þarf til þess að fá að keyra sleða. Þetta er frábær ferð fyrir vinahópa og fjölskyldur en sex ára aldurstakmark er í ferðirnar. Ferðin um jökulinn tekur um klukkustund og svo skutlum við hópnum aftur á Gullfoss. Í heildina eru þetta um þrír og hálfur til fjórir tímar,“ segir Haukur. Panta verður með fyrirvara og í síðasta lagi deginum áður. „Svona ferðir eru auðvitað alltaf háðar veðrinu og ef spáin er slæm bjóðum við fólki að færa sig um dagsetningar, eða fá ferðina endurgreidda,“ segir Haukur. Nánar má kynna sér ferðirnar hér.
Ferðamennska á Íslandi Ferðalög Mest lesið Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Vera sem varð til eftir gott vinkonuspjall á sunnudegi Atvinnulíf Bein útsending: Skattadagurinn 2026 Viðskipti innlent Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Samstarf Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Forstjórinn sem byrjar daginn á því að horfa á fallegu konuna sína Atvinnulíf Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Sjá meira