Körfubolti

Stórir sigrar hjá Knicks og Warri­ors í kvöld | Um­­­spil NBA-deildarinnar út­­skýrt

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Úr leik New York Knicks og Boston Celtics í kvöld.
Úr leik New York Knicks og Boston Celtics í kvöld. EPA-EFE/CJ GUNTHER

Alls fóru sex leikir fram í NBA-deildinni í körfubolta í kvöld. Það er nánast allt klárt varðandi úrslitakeppnina og umspilið sem klárast áður.Deildin klárast hins vegar í nótt þegar aðrir tíu leikir fara fram og þar eru tveir sem skera sig úr.

New York Knicks vann fjögurra stiga sigur á Boston Celtics, 96-92, og tryggði sér 4. sætið í Austurdeildinni. RJ Barrett skoraði 22 stig í liði Knicks og Julius Randle skoraði 20 stig ásamt því að grípa sjö fráköst og gefa sjö stoðsendingar. Jabari Parker var stigahæstur hjá Boston með 18 stig.

Khris Middleton skoraði 21 stig í 122-108 sigri Milwaukee Bucks á Miami Heat. Jrue Holiday kom þar á eftir með 20 stig en hann gaf einnig 10 stoðsendingar. Kendrick Nunn skoraði 31 stig í liði Heat.

Önnur úrslit voru þau að Indiana Pacers vann Toronto Raptors, 125-113, og Washington Wizards vann Charlotte Hornets, 115-110. Þá vann Phoenix Suns dramatískan tveggja stiga sigur á San Antonio Spurs, 123-121 og að lokum vann Golden State Warriors 12 stiga sigur á Memphis Grizzlies, 113-101.

Warriors náðu þar með 8. sæti Vesturdeildarinnar. Að venju var það Stephen Curry sem fór gjörsamlega hamförum en hann skoraði 46 stig í kvöld. 

Umspil NBA-deildarinnar fer fram 18. til 21. maí og munu liðin í 7. til 10. sæti keppa um sæti í úrslitakeppninni. Vegna kórónufaraldursins var ákveðið að spila 72 leiki í deildarkeppninni frekar en 82 líkt og venjan er.

Til að halda spennunni sem lengst var ákveðið að hafa umspil hjá þeim liðum sem eru í kringum síðustu sætin sem þýða þátttöku í úrslitakeppninni.

Liðin í 7. og 8. sæti mætast innbyrðis, liðið sem vinnur þann leik tryggir sér 7. sæti í deildinni og sæti í úrslitakeppninni. Liðin í 9. og 10. sæti mætast einnig innbyrðis, sigurvegarinn í þeim leik mætir svo tapliðinu úr viðureign liðanna í 7. og 8. sæti. Sigurvegarinn úr þeirri viðureign fær þá 8. og síðasta sætið í úrslitakeppninni.

Í Austurdeildinni er staðan þannig að Philadelphia 76ers eru búnir að tryggja sér efsta sætið. Þar á eftir koma Brooklyn Nets, Milwaukee Bucks, New York Knicks, Atlanta Hawks og Miami Heat.

Í umspilið fara Boston Celtics, Charlotte Hornets, Washington Wizards og Indiana Pacers.

Í Vesturdeildinni er staðan þannig að Utah Jazz tróna á toppnum. Þar á eftir koma Phoenix Suns, Denver Nuggets, Los Angeles Clippers og Dallas Mavericks.

Í nótt kemur í ljós hvort Portland Trail Blazers eða Los Angeles Lakers tryggi sér sjötta sætið. Trail Blazers eru í 6. sætinu að svo stöddu og vinni þeir Nuggets í nótt er sætið þeirra.

Golden State Warriors, Memphis Grizzlies og San Antonio Spurs fara svo í umspilið.


NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×