KA bæði með fleiri stig og fleiri mörk en þegar liðið varð Íslandsmeistari 1989 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. maí 2021 10:30 KA er með níu stig og tíu mörk í síðustu þremur leikjum sínum. Hér fagna þeir einu af fimm mörkum Hallgríms Mar Steingrímssonar. Vísir/Hulda Margrét Það er ekki nóg að fara aftur um þrjá áratugi til að finna betri byrjun hjá KA mönnum á Íslandsmótinu en í Pepsi Max deildinni í ár. Íslandsmeistaraárið stenst ekki þann samanburð. KA-menn eru eitt af fjórum liðum í Pepsi Max deild karla sem hafa náð í tíu stig í fyrstu fjórum umferðunum. KA liðið er bæði með 10 stig og 10 mörk eftir fyrstu fjóra leikina og hefur aldrei áður byrjað Íslandsmótið svona vel. Það vekur ekki síður athygli að KA-menn hafa ekki enn spilað á sínum eigin heimavelli því þrír af fyrstu fjórum leikjunum hafa verið á útivelli og sá fjórði, eini heimaleikur liðsins, var spilaður á Dalvík þar sem Akureyrarvöllur er ekki leikfær. Það er ljóst að þessi byrjun KA-liðsins er söguleg fyrir Akureyrarfélagið. KA byrjaði ekki einu sinni svona vel sumarið 1989 þegar félagið varð Íslandsmeistari í fyrsta og eina skiptið. KA-menn fengu átta stig og skoruðu sjö mörk í fyrstu fjórum leikjum sínum á Íslandsmeistaraárinu fyrir 32 árum síðan. KA gerði markalaust jafntefli í fyrsta leik sínum í Kórnum en hefur unnið þrjá leiki í röð síðan að liðið komst aftur út. KA vann 3-1 sigur á KR á KR-vellinum, 3-0 sigur á Leikni R. á Dalvíkurvelli og loks 4-1 útisigur á Keflavík í HS Orku vellinum í fyrrakvöld. Af þessum tíu mörkum þá hefur Hallgrímur Mar Steingrímsson skorað fimm mörk sjálfur og lagt upp önnur þrjú til viðbótar. Þessi byrjun er þó ekki einsdæmi á Akureyri því Þórsarar fengu líka tíu stig út úr fyrstu fjórum leikjum sínum sumarið 1992 en þeir voru þá nýliðar í deildinni og enduðu í þriðja sæti um haustið. Eina stigið sem Þórsarar töpuðu í upphafi mótsins 1992 var einmitt í 2-2 jafntefli í nágrannaslag á móti KA. Fyrstu fjórir leikir KA-manna á Íslandsmeistaraárinu 1989: Marklaust jafntefli á móti FH á útivelli (22. maí) 3-1 sigur á Fram á heimavelli (26. maí) Marklaust jafntefli á móti Þór Akureyri á útivelli (3. júní) 4-1 sigur á KR á heimavelli (9. júní) Pepsi Max-deild karla KA Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira
KA-menn eru eitt af fjórum liðum í Pepsi Max deild karla sem hafa náð í tíu stig í fyrstu fjórum umferðunum. KA liðið er bæði með 10 stig og 10 mörk eftir fyrstu fjóra leikina og hefur aldrei áður byrjað Íslandsmótið svona vel. Það vekur ekki síður athygli að KA-menn hafa ekki enn spilað á sínum eigin heimavelli því þrír af fyrstu fjórum leikjunum hafa verið á útivelli og sá fjórði, eini heimaleikur liðsins, var spilaður á Dalvík þar sem Akureyrarvöllur er ekki leikfær. Það er ljóst að þessi byrjun KA-liðsins er söguleg fyrir Akureyrarfélagið. KA byrjaði ekki einu sinni svona vel sumarið 1989 þegar félagið varð Íslandsmeistari í fyrsta og eina skiptið. KA-menn fengu átta stig og skoruðu sjö mörk í fyrstu fjórum leikjum sínum á Íslandsmeistaraárinu fyrir 32 árum síðan. KA gerði markalaust jafntefli í fyrsta leik sínum í Kórnum en hefur unnið þrjá leiki í röð síðan að liðið komst aftur út. KA vann 3-1 sigur á KR á KR-vellinum, 3-0 sigur á Leikni R. á Dalvíkurvelli og loks 4-1 útisigur á Keflavík í HS Orku vellinum í fyrrakvöld. Af þessum tíu mörkum þá hefur Hallgrímur Mar Steingrímsson skorað fimm mörk sjálfur og lagt upp önnur þrjú til viðbótar. Þessi byrjun er þó ekki einsdæmi á Akureyri því Þórsarar fengu líka tíu stig út úr fyrstu fjórum leikjum sínum sumarið 1992 en þeir voru þá nýliðar í deildinni og enduðu í þriðja sæti um haustið. Eina stigið sem Þórsarar töpuðu í upphafi mótsins 1992 var einmitt í 2-2 jafntefli í nágrannaslag á móti KA. Fyrstu fjórir leikir KA-manna á Íslandsmeistaraárinu 1989: Marklaust jafntefli á móti FH á útivelli (22. maí) 3-1 sigur á Fram á heimavelli (26. maí) Marklaust jafntefli á móti Þór Akureyri á útivelli (3. júní) 4-1 sigur á KR á heimavelli (9. júní)
Fyrstu fjórir leikir KA-manna á Íslandsmeistaraárinu 1989: Marklaust jafntefli á móti FH á útivelli (22. maí) 3-1 sigur á Fram á heimavelli (26. maí) Marklaust jafntefli á móti Þór Akureyri á útivelli (3. júní) 4-1 sigur á KR á heimavelli (9. júní)
Pepsi Max-deild karla KA Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ Fótbolti Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira