Skoðun

Arnar Þór á mikið erindi á Al­þingi

Haraldur Ólafsson skrifar

Ófæran

Á ferðalagi er mikilvægt að ná næstu beygju og komast í gegnum þá skafla sem fyrir verða. Það er líka mikilvægt að vita hvert er haldið og hvaða leið er valin. Jafnvel þótt einhverjar hugmyndir séu uppi um áfangastað dugir það ekki ef ökumaðurinn velur leið með sífellt krappari beygjum, þrengri slóða og stærri sköflum, leið sem endar í ófæru. Sú leið að fela öðrum en þeim, sem þiggja umboð sitt frá fólkinu í landinu, að setja fleiri og fleiri lög á ótal sviðum er ófæra.

Uppruninn og lesturinn

Sífellt fleiri lög á Íslandi eiga rætur í tilskipunum sem berast með pósti frá útlöndum. Þær reglur sem samdar eru með þarfir erlendra stjórþjóða í huga geta orðið til mikillar óþurftar á Íslandi. Þær geta þjónað hagsmunum stórþjóðanna, eða þeirra sem þar ráða, á kostnað hagsmuna Íslendinga með beinum og skýrum hætti, en þær geta líka verið verulega kostnaðarsamar og íþyngjandi fyrir íslensk samfélag, án þess að öðrum þjóðum sé nokkur hagur af því.

Eflaust eru margar af þessum erlendu reglum ágætar og til bóta fyrir landsmenn. Þær má þá taka upp í íslensk lög, höfundunum í útlöndum fullkomlega að meinalausu.Mönnum eins og Arnari Þór Jónssyni er öðrum fremur treystandi í slíkt verkefni.

Ekki spillir svo að Arnar Þór er afar hallur undir að ungt fólk nái góðri færni í að lesa, skrifa og reikna.

Taumlaus velsæld og gleði

Arnar Þór er hlynntur frelsi til orðs og æðis í framtíðarsamfélagi þar sem allir tútna út af velsæld, gleði, réttsýni og þekkingu. Það eru reyndar flestir aðrir á sömu línu svo það eitt dugir ekki þegar velja þarf fólk til að smíða lög. Það þarf kraft, yfirvegun og glöggskyggni. Á það allt við um Arnar Þór.

Það þarf kraft til að rífa sig úr þægilegri innivinnu, starfi sem tekið hefur áratugi að koma sér í og mun fleiri vilja, en fá. Arnar Þór Jónsson hafði kraft til að koma sér í það starf og sýnir nú að hann hefur kraft til að hætta því og takast á við að vinna hugsjónum brautargengi. Það er erfitt að snúa svoleiðis menn niður. Arnar Þór hefur mjög mikla þekkingu á þeim sviðum sem til þarf og hann ber líka í sér atorku, skynsemi og þá glöggskyggni sem svo nauðsynleg er fyrir þá sem taka að sér að smíða Íslendingum lög.

Svo er hann svo háttvís menn hugsa sig tvisvar um áður en þeir leggja í hann.

Niðurstaðan

Niðurstaðan eru sú að það er verulega góð hugmynd að styðja Arnar Þór Jónsson í yfirstandandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi.




Skoðun

Sjá meira


×