Skoðun

Mikil­vægt er að draga lær­dóm af smáíbúðamálinu i Hafnar­firði

Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar

Meirihluti Samfylkingar, Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði hefur ákveðið að falla frá áformum um uppbyggingu íbúða fyrir tímabundna búsetu við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg. Kröftug mótmæli bæjarbúa við hugmyndinni liggja að baki þeirri ákvörðun. Á íbúafundi í síðustu viku komu fram fjölmargar málefnalegar athugsemdir við áformin og yfir 3000 manns hafa nú ritað nafn sitt á undirskriftarlista og mótmælt þeim. Kjörnum fulltrúum ber að hlusta og bregðast við þegar afstaða íbúa er jafn skýr og í þessu tilfelli. Það hefur merihlutinn nú gert og það er mikilvægt.

Samningur undirritaður með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar

Forsagan er sú að málið kom fyrst inn til umræðu fyrir tæpu ári síðan en kemur þó ekki opinberlega til umræðu fyrr en 17. september síðastliðinn á fundi bæjarráðs. Þá var lagður fram fullbúinn samningur milli aðila til afgreiðslu. Fulltrúar meirihlutans og Framsóknarflokksins samþykktu samninginn á fundinum, vísuðu málinu til bæjarstjórnar og samningur milli aðila var í kjölfarið undirritaður með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.

Andstaða við verkefnið og vinnubrögðin

Í mínum huga hafa íbúar ekki bara fyrirvara um verkefnið sem slíkt. Þeir gera einnig athugsaemdir við það hvernig málið er unnið og að samningurinn hafi ekki verið kynntur áður en hann var samþykktur í bæjarráði. Íbúasamráð á að fara fram í aðdraganda ákvörðunar en ekki eftir að ákvörðun liggur fyrir. Það er grundvallaratriði og þess vegna er að finna í samþykktum bæjarins ákvæði um að íbúar geti krafist íbúakosningar séu þeir ósáttir við ákvörðun sem á endanum er tekin. Það er hins vegar neyðarventill sem ætlað er að tryggja það að bæjarstjórn vandi ákvarðanir sínar og íbúasamráð.

Nauðsynlegt að draga lærdóm af málinu

Það er mikilvægt að við sem stýrum bæjarfélaginu drögum lærdóm af málinu. Við eigum að tryggja aðkomu bæjarbúa að málum eins og þessu á fyrri stigum þeirra. Samráðið á ekki að fara af stað eftir að niðurstaða liggur fyrir. Tryggja verður að allur undirbúningur og samráð við íbúa sé eins vandað og mögulegt er. Það er grundvallaratriði sem við eigum að halda í heiðri í öllum okkar störfum í bæjarstjórn. Þannig komum við í veg fyrir þá stöðu sem upp kom eftir fund bæjarráðs 17. september síðastliðinn.

Íbúasamráð er grundvallaratriði í stjórnun sveitarfélags

Virkt samráð við íbúa og íbúalýðræði er mikilvæg forsenda fyrir vandaðri ákvarðantöku. Bæjarstjórn verður einfaldlega að taka mið af því í störfum sínum að ákvarðanir hennar hafa í mörgum tilfellum áhrif á nærumhverfi fólks og þá skiptir öflugt samráð við íbúa öllu máli. Þess vegna verður að vanda það og tryggja að það fari fram á réttum tíma þannig að íbúar hafi tækifæri til þess að koma sínum sjónarmiðum á framfæri áður en ákvörðun er tekin.

Höfundur er bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.




Skoðun

Sjá meira


×