Ævintýraleg útivist með Íslenskum fjallaleiðsögumönnum Íslenskir fjallaleiðsögumenn 18. júní 2021 09:15 Gamla smalaleiðin meðfram Sólheimajökli er afar vinsæl ferð og hentar göngugörpum allt niður í 12 ára aldur. Suðurlandið er risastór kennslustofa í jarðfræði og ævintýraheimur.
Íslenskir fjallaleiðsögumenn og Arcanum ævintýraferðir hafa sameinað krafta sína og bjóða upp á spennandi ævintýra- og afþreyingaferðir um Suðurland. Arnar Már Ólafsson, markaðstjóri Íslenskra fjallaleiðsögumanna segir ferðirnar frábærar fyrir fjölskyldufólk. „Suðurlandið er risastór kennslustofa í jarðfræði þar sem saman fara jöklar, sandur, fjöll og hraun. Það er stórskemmtilegt fyrir krakka að uppgötva og upplifa landið með foreldrum sínum. Við bjóðum fjölbreytt úrval ferða og mikið af fjölskylduvænni afþreyingu,“ segir Arnar en meðal þess sem er í boði eru snjósleðaferðir, fjórhjólaferðir, jökulgöngur og kayaksiglingar. Fjórhjólaferðirnar tvinna saman skemmtilegan akstur og fjölbreytt landslag en ekið er um Sólheimasand meðfram fjöllum og fjöru. Snjósleðaferð á Mýrdalsjökli er einstakt ævintýri en ekið er undir leiðsögn fararstjóra upp á jökulinn. Þátttakendur fá allan útbúnað til ferðarinnar, galla og hjálm og ítarlegar leiðbeiningar um meðferð og notkun vélsleða og öryggisreglur áður en haldið er af stað. Útsýni er stórfenglegt yfir Suðurland, austur yfir Mýrdal og Dyrhólaey. Útsýni í snjósleðaferðunum er stórfenglegt yfir Suðurland, austur yfir Mýrdal og Dyrhólaey. Jökulgöngur eru í boði á Sóheimajökli og frá Skaftafelli. Báðar ferðirnar eru þægilegar og fjölskylduvænar og farnar undir leiðsögn reyndra fararstjóra sem leiða hópinn um jökulinn þar sem sjá má stórfenglegt landslag, t.d. vatnssvelgi, bláar og tærar ísmyndanir og jökulsprungur. Ógleymanleg upplifun fyrir unga sem aldna en einnig er boðið upp á meira krefjandi ferðir þar sem þátttakendur fá að klifra í ísnum. Jökulgöngurnar eru ógleymanleg upplifun. Fjórhjólaferðirnar tvinna saman skemmtilegan akstur og fjölbreytt landslag en ekið er um Sólheimasand meðfram fjöllum og fjöru og flugvélarflakið fræga skoðað. Kayakferðirnar sýna Sólheimajökul frá nýju snjóarhorni en siglt er um lónið við rætur jökulsins. Notast er við kayaka sem auðvelt er að stýra og henta byrjendum sem lengra komnum. Þá er hægt að tvinna saman mismunandi ferðir og búa til ógleymanlegan dag. Ferðalangar upplifa landið á nýjan hátt í fjórhjólaferðum. „Auk þessa bjóðum við upp á gönguferðir og er Gamla Smalaleiðin meðfram Sólheimajökli stórkostleg ganga,“ segir Arnar. „Göngufólki er ekið upp í 750 metra hæð og svo er gengið niður með jöklinum. Útsýnið yfir Eyjafjallajökul, Sólheimajökul og Suðurströndina er stórbrotið og mikil upplifun. Gangan tekur um sex tíma og vel á færi allt niður í 12 ára göngugarpa,“ segir Arnar og lofar ógleymanlegum degi. Gönguferðin eftir Gömlu smalaleiðinni er frábær útivist í stórbrotnu landslagi. „Markmið okkar er að bjóða ávallt upp á bestu ferðirnar, bestu leiðsögumennina og besta verðið. Við höfum allt frá stofnun, eða í tæp 30 ár verið leiðandi í ævintýraferðum um Ísland og erum þekkt fyrir öryggi, gæði og fagmennsku. Undanfarin ár hafa erlendir ferðamenn verið stór hluti okkar viðskiptavina en síðasta ár hafa Íslendingar sannarlega uppgötvað eigið land. Það færir upplifunina á annað stig að ferðast með leiðsögumanni,“ segir Arnar og bendir á að hægt sé að nýta ferðagjöfina hjá Íslenskum fjallaleiðsögumönnum. Kayakferðirnar sýna Sólheimajökul frá nýju snjóarhorni en siglt er um lónið við rætur jökulsins. Hægt er að kynna sér allar ferðir Íslenskra fjallaleiðsögumanna hér.
Ferðamennska á Íslandi Ferðalög Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Innlent Slapp vel þegar bíll hans valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Fleiri fréttir Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Vinnupallar bjóða heildarlausnir fyrir öruggari framkvæmdir Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Alvöru þægindi eftir átján holur Wise valið samstarfsaðili ársins hjá Companial Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Sjá meira