Ólöf Nordal útnefnd borgarlistamaður Árni Sæberg skrifar 17. júní 2021 14:30 Ólöf Nordal í Höfða, hvar verðlaunin voru afhent. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, útnefndi í dag 17. júní, Ólöfu Nordal myndlistarkonu, Borgarlistamann Reykjavíkur 2021 við hátíðlega athöfn í Höfða. Útnefningin er heiðursviðurkenning til listamanns sem með listsköpun sinni hefur skarað fram úr og markað sérstök spor í íslensku listalífi.
Listamanninum var veittur ágrafinn steinn, heiðursskjal og verðlaunafé og Una Sveinbjarnardóttir fiðluleikari flutti tvö verk við tilefnið. Ólöf Nordal er fædd árið 1961 í Danmörku. Hún nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1981–85, við Gerrit Rietvelt Academie í Hollandi 1985, í Bandaríkjunum við Cranbrook Academy of Art 1989–91 og við höggmyndadeild Yale háskóla 1991–93. Verk Ólafar hafa verið sýnd á öllum helstu sýningarstöðum hér á landi en einnig alþjóðlega og eru hluti af safneignum helstu safna hérlendis. Ólöf er höfundur áberandi verka í almannarými, má þar nefna Geirfuglinn í Skerjafirði, Vitid ér enn - eda hvat? í anddyri Alþingishússins, Bríetarbrekku við Þingholtsstræti og umhverfislistaverkið Þúfu á Granda. Á dögunum var afhjúpað nýtt listaverk Ólafar við Menntaskólann í Hamrahlíð sem ber heitið Auga og seint á síðasta ári var afhjúpað útilistaverk í Portland Maine í Bandaríkjunum sem ber heitið Hella Rock. Ólöf hefur hlotið hina ýmsu styrki og viðurkenningar fyrir list sína, m.a. úthlutun úr Listasjóði Dungal, styrk úr Listasjóði Guðmundu sem er ein æðsta viðurkenning sem veitt er á sviði myndlistar á Íslandi og viðurkenningu úr höggmyndasjóði Richard Serra. Á nýársdag 2018 var Ólöf sæmd heiðursmerki hinnar Íslensku Fálkaorðu af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni. Riddarakrossinn hlaut Ólöf fyrir framlag sitt til íslenskrar myndlistar. Ólöf hefur í gegnum árin öðlast umfangsmikla kennslureynslu á háskólastigi og reynslu af akademískum störfum. Hún hefur sinnt kennslu í myndlistardeild Listaháskóla Íslands og gegnir nú stöðu prófessors við sömu deild.
Reykjavík 17. júní Mest lesið Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Lífið Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni Lífið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Lífið „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Azealia Banks heldur tónleika í Austurbæjarbíói Tónlist Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Lífið Fleiri fréttir Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira